Sumardeginum fyrsta 2023 verður fagnað með fjölbreyttum hátíðarhöldum um allan Hafnarfjörð!

 

Kl. 12 Víðavangshlaup Hafnarfjarðar í miðbæ Hafnarfjarðar.

Upphitun hefst á Thorsplani kl. 12. Hlaupið verður eftir Strandgötu og skipt í aldursflokka að lokinni upphitun. Ekkert þátttökugjald er í hlaupið og skráning fer fram með því að mæta á staðinn. Sigurvegarar í flokkum fá bikara og allir keppendur verðlaunapeninga sem eru gefnir af Hafnarfjarðarbæ. Að hlaupi loknu mun frjálsíþróttadeild FH kynna frjálsar íþróttir á Thorsplani þar sem hægt verður að prófa langstökk og kúluvarp. Strandgata verður lokuð fyrir bílaumferð meðan á hlaupinu stendur og þar til skrúðgangan leggur af stað á Víðistaðatún kl. 13:15.

 

Kl. 12-15 Opið hús hjá Púlukastfélagi Hafnarfjarðar

Verið velkomin í pílu í Píluklúbbnum, keyrt bakvið Reykjavíkurveg 64. Þar eru til dæmis fjögur spjöld sem er hægt að stilla í sitjandi hæð.

 

Kl. 13-15 Badminton og borðtennis í íþróttahúsinu við Strandgötu

Gestum og gangandi er boðið að prófa badminton og borðtennis hjá Badmintonfélagi Hafnarfjarðar í íþróttahúsinu við Strandgötu.

 

Kl. 13-18 Opið hús hjá Siglingaklúbbnum Þyt, Strandgötu 88

Byrjendum og vönum siglingamönnum er boðið að sigla kayak (9 ára og eldri) eða árabátum og þeir sem hafa reynslu geta siglt kænum ef veður leyfir.

Í allt sumar verður opið hús hjá Siglingaklúbbnum Þyt á fimmtudögum kl. 17 til 22 og laugardögum frá kl. 10 til 13. Allir velkomnir.

 

Kl. 13:15 Skrúðganga frá Thorsplani að Víðistaðatúni

Gengið verður frá Thorsplani út Strandgötu, gegnum Bæjartorg, inn Vesturgötu gegnum Merkurtorg, Vesturtorg og Flókatorg, Flókagötu og beygt inn Hraunbrún og upp Garðaveg og endað á Víðistaðatúni undir lúðrablæstri Lúðrasveitar Hafnarfjarðar.

 

Kl. 13:30-16 Fjölskyldudagskrá á Víðistaðatúni í umsjón skátafélagsins Hraunbúa

Skemmtileg og fjölbreytt skátadagskrá fyrir alla fjölskylduna á Víðistaðatúni og skátamiðstöðinni Hraunbyrgi. Kassaklifur, klifurveggur, hægt að prófa að grilla sykurpúða og hike brauð við eldstæði, hoppukastalar, bátar, risastórt hengirúm og partýtjald þar sem hljómsveitin Enter name leikur nokkur lög um kl. 14. Kaffisala í Hraunbyrgi og söluhús á Víðistaðatúni þar sem til sölu verður ullarsykur, krap og popp.

 

Kl. 14 Sumartónleikar með Ukulellum á Bókasafni Hafnarfjarðar

Ukulellur halda sumartónleika á bókasafninu á sumardaginn fyrsta, leika á Ukulele (ef það þarf að taka það fram) og skemmta gestum og gangandi. Hvað er betra en 13 fjórstrengdir söngfuglar með munninn fyrir neðan nefið til að fagna. Fullkomið fyrir sumarið, gleðina og bara allt!

Að vanda er ókeypis inn, allir velkomnir og endalaus stemming í gangi, auk kaffis og með’ðí.

 

Kl. 16:00 BMX BRÓS á tennisvellinum á Víðistaðatúni

BMX BRÓS slá botninn í dagskrána á Víðistaðatúni með áhættusömum atriðum og hjólasýningu fullri af gleði og húmor.

Ábendingagátt