Frístundamessa fyrir börnin í Hafnarfirði
Frístundamessa í Hafnarfirði Þann 29. ágúst koma íþrótta- og tómstundafélög Hafnarfjarðar saman og kynna starfsemi sína fyrir börnum og foreldrum…
Hafnarfjarðarbær boðar til opins íbúafundar þar sem kynntar verða hugmyndir að stækkun útisvæðis Ásvallalaugar ásamt hugmyndum að nýrri kennslulaug. Fundurinn verður haldinn mánudaginn 13. október kl. 18 í sal Ásvallalaugar á 2. hæð Fundarstjóri er Guðbjörg Oddný Jónasdóttir formaður umhverfis- og framkvæmdaráðs.
Kynning á verkefni. Aron Freyr Leifsson, Davíð Ingi Bustion og Sveinn Bjarki Þórarinsson, arkitektar frá Batteríinu, kynna tillöguna og kalla eftir ábendingum frá íbúum. Fulltrúar Hafnarfjarðarbæjar og hönnuðir verða til samtals við fundargesti eftir kynninguna. Allir áhugasamir eru hvattir til að mæta til fundar, kynna sér fyrirhugaðar framkvæmdir og taka þátt í samtalinu um framtíð svæðisins.
Hlökkum til að sjá ykkur!
———————————————