Graskeraskurður í Hrellisgerði!
Graskeraskurður í Hellisgerði! Helgina 24.–25. október bjóðum við ykkur að koma í graskeraskurð og njóta notalegrar hrekkjavökustemningar í Hellisgerði, í…
Þann 29. ágúst koma íþrótta- og tómstundafélög Hafnarfjarðar saman og kynna starfsemi sína fyrir börnum og foreldrum þeirra, í íþróttahúsinu á Strandgötu. Tilgangur frístundamessunnar er að aðstoða börnin við að finna íþrótt eða tómstund sem hæfir þeim.
Alls starfa 38 íþróttafélög í Hafnarfirði. Innan þeirra er hægt að finna fjöldan allan af íþróttagreinum. Kynnast má mörgum þeirra á frístundamessunni. Félögin bjóða börnum bæði uppá kynningar og prufur.
Brúarsmiðirnir verða á svæðinu til að tryggja að fólk með mismunandi tungumála- og menningarbakgrunn geti einnig tekið þátt.
Við sjáum þig á svæðinu.