Jólahelgar á Byggðasafni Hafnarfjarðar ✨🎄

Komdu og njóttu notalegrar jólastemningar á Byggðasafni Hafnarfjarðar í aðdraganda jóla. Um hverja helgi býður safnið upp á fjölbreytta viðburði fyrir alla fjölskylduna þar sem hægt er að kynnast gömlum jólahefðum og skapa dýrmætar minningar saman.

🔥 Alla laugardaga og sunnudaga frá kl. 14:00–15:00 er boðið upp á sykurpúða í Pakkhúsi Byggðasafnsins sem hægt er að grilla yfir eldstæðinu á Byggðasafnstorginu. Komdu og hlýjaðu þér við eldinn og eigðu notalega stund í fallegu umhverfi safnsins.

  1. nóvember – Jólin í Siggubæ

Siggubær tekur á móti gestum í jólastemningu frá kl. 13:00–17:00. Húsið verður opið fyrir gesti sem vilja skoða Siggubæ og þiggja piparkökur á meðan þeir njóta notalegrar stemningar aðventunnar.

🎄 Við hlökkum til að taka á móti ykkur á Byggðasafni Hafnarfjarðar og njóta aðdraganda jólanna saman í hlýlegu og hátíðlegu umhverfi.

Ábendingagátt