Sýningardagskrá LG 2026 í Jólabænum Hafnarfirði
Það verður nóg um að vera í miðbæ Hafnarfjarðar í nóvember og desember. Samhliða stemningunni í Jólaþorpinu býður Litla gallerí…
Jólaþorpið í Hafnarfirði hefur fengið framúrskarandi viðtökur þetta árið. Stemningin hefur verið dásamleg.
Jólaþorpið með fagurlega skreyttu hafnfirsku jólahúsunum eru fyrir löngu orðið landsþekkt fyrir ýmisskonar spennandi gjafavöru, sælkerakrásir, handverk og hönnun. Já, þar er tilvalið að leita að hinni fullkomnu jólagjöf á meðan fjölskyldan nýtur gómsætra veitinga sem ylja að innan.
Jólasveinarnir koma í heimsókn um helgar og Grýla verður einnig á vappi um bæinn á sunnudögum. Strandgata breytist í göngugötu á meðan Jólaþorpið er opið
————————————————————–
Jólaþorpið á Thorsplani í Hafnarfirði verður opið allar helgar frá og með 13. nóvember.
Föstudaga frá kl. 17-20
Laugardaga frá kl. 13-20
Sunnudaga frá kl. 13-18
Helliskaffi í Hellisgerði er opið miðvikudaga til sunnudaga til jóla.
Nýtt leikrit um bókaálfana Unu og Snotru á Bókasafni Hafnarfjarðar alla sunnudaga fram að jólum. Tvær sýningar á dag kl. 13 og kl. 15 – nánar og miðakaup hér
Sérstök athygli er vakin á því að Hjartasvellið og tívolí við Venusarhúsið Strandgötu 11 eru opin allar helgar fram að jólum í takt við opnun Jólaþorpsins.
Kl. 19 – Páll Óskar ásamt undirleikara syngja og spila falleg jólalög í Jólaþorpinu
Kl. 13 – Aðventa – leiklestur á Bókasafni Hafnarfjarðar
Kl. 15:15 – Þorri og Þura í Jólaþorpinu
Kl. 13-17 – Jólamarkaður í ÆGI
Kl. 16 – Leikhópurinn Lotta með söngvasyrpu
Kl. 17:30 – Sorgarganga frá St.jó yfir í Hellisgerði
Jólabærinn og Jólaþorpið iða allt af lífi og fjöri fyrir jólin. Fagurlega skreyttu hafnfirsku jólahúsin á Thorsplani eru fyrir löngu orðin landsþekkt fyrir ýmisskonar spennandi gjafavöru, sælkerakrásir, handverk og hönnun.
Tilvalið er að leita að hinni fullkomnu jólagjöf í Jólaþorpinu á meðan notið er gómsætra veitinga sem ylja að innan. Jólasveinarnir koma í heimsókn allar helgar og Grýla verður á vappi um bæinn á sunnudögum.
Strandgata frá Lækjargötu að Linnetstíg breytist í göngugötu á meðan Jólaþorpið er opið. Það er gert til að dreifa umferð gangandi vegfaranda um miðbæinn og tryggja öryggi allra okkar góðu gesta.
Við erum jólabærinn Hafnarfjörður
Allt um jólabæinn Hafnarfjörð hfj.is/jol
Fylgdu okkur á Facebook og instagram !