Takið daginn frá fyrir Vegan Festival 
Samtök grænkera á Íslandi tilkynna með gleði og ánægju að enn á ný verður Vegan hátíðin haldin með pompi og prakt!
Gleðin mun hefjast kl 12:00 á sólríkum sunnudegi (við höfum sent inn sterklega orðaða veðurbeiðni) og standa yfir til 16:00, jafnvel 17:00 ef vel viðrar til!
Síðustu ár hefur gestafjöldi verið í kringum 1000 manns samkvæmt óformlegu tali Hafnarfjarðarbæjar. Yfirleitt hefur nánast allur matur selst upp og framleiða fyrirtæki þó talsvert umfram það sem þau áætla að þau selji. Við hvetjum fólk því til að mæta tímanlega.
Ekki er bara matur heldur einnig aðrar vegan vörur svo nóg er að skoða og kynna sér.
Verið velkomin, deilið sem víðast og dragið með ykkur öll sem hafa gaman af lífinu! 
Við hlökkum til samverunnar og vonumst til að sjá sem allra flest.
Væn og græn kveðja,
Stjórn SGÍ
Stjórn SGÍ