Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Heilsubærinn Hafnarfjörður býður til ókeypis og upplýsandi fræðslustundar sem ekkert foreldri eða starfsfólk skóla ætti að láta framhjá sér fara. Áhrifaríkur fyrirlestur um áhrif skjátíma á þroska og líðan barna, frumsýning á myndbandi Foreldraráðs Hafnarfjarðar og fallegir boðberar kærleikans. Fræðslustundin verður í beinu streymi en öll áhugasöm eindregið hvött til að gefa sér tíma og mæta í Bæjarbíó, meðtaka, spyrja og fræðast. Fræðslustundin er upphaf vegferðar sem hefur þann tilgang að opna augun – augu allra.
Unnur Arna Jónsdóttir er eigandi Hugarfrelsis. Unnur verður fyrirlesari fræðslustundarinnar og er markmiðið m.a. að veita öllum áhugasömum aukin verkfæri til að takast á við áskoranir tengdar skjátíma barna og ungmenna. Flest gerum við okkur grein fyrir því að skjátími hefur áhrif en fæst hversu skaðleg áhrifin geta verið á heilbrigði og líðan barna okkar.
Foreldraráð Hafnarfjarðar mun frumsýna áhugavert myndband tengt skjátíma barna. Foreldraráðið er metnaðarfullt og með spennandi hugmyndir um alls konar tengt aukinni samveru, útiveru og upplifun.
Kór Öldutúnsskóla, undir styrkri stjórn Brynhildar Auðbjargardóttur, mun flytja lagið Skínum skært og gerast þannig boðberar kærleikans í Hafnarfirði. Flutningurinn mun ekki láta neinn ósnortinn.
Stella Björg Kristinsdóttir, fagstjóri forvarna og frístundastarfs hjá Hafnarfjarðarbæ, sér um stýringu fræðslustundar.
——————————
Haustið 2024 fór Hafnarfjarðarbær og heilsubærinn Hafnarfjörður af stað með fundaröðina: Við erum þorpið – um málefni barna og ungmenna, líðan þeirra og öryggi. Á árinu 2025 mun þessi fundarröð halda áfram og það undir heitinu: Við erum þorpið – horfumst í augu. Heitið er innihaldsríkt og tekur til samskipta, samveru, hugmynda, upplifunar og alls þess sem hægt er að gera án tækja og tóla. Árið 2025 verður ár enn meira samstarfs heimila, skóla og samfélags og þar spila foreldrafélög í hverjum skóla stórt hlutverk. En umfram allt eru það foreldrarnir sjálfir sem spila stærsta hlutverkið.
Fundaröðin er jafnframt hluti af vegferð Hafnarfjarðarbæjar að hljóta viðurkenningu sem barnvænt sveitarfélag UNICEF á Íslandi.
Vertu með í vegferðinni! 👣
Viðburður á Facebook
Heilsubærinn Hafnarfjörður auglýsir eftir liðum sem vilja taka þátt í kappróðri á höfninni á Sjómannadaginn sunnudaginn 1. júní. Hefð hefur…
Hafnarfjarðarhlaupið verður haldið í þriðja skiptið fimmtudaginn 12. júní kl. 20:00. Hlaupin verður frábær leið frá miðbænum um íbúða- og…