Hagnýtar upplýsingar

Hér má finna upplýsingar um heildræna þjónustu og samþætta þjónustu hjá Hafnarfirði.

Heildræn eða samþætt þjónusta

Heildræn Þjónusta

Skipulögð og heildræn þjónusta sem hefur það að markmiði að tryggja gæði og stuðla að samfellu í þjónustu við einstakling og er veitt af þeim þjónustuveitendum sem eru best til þess fallnir að mæta þörfum einstaklings hverju sinni.

Samþætt þjónusta

Skipulögð og samfelld þjónusta sem hefur það að markmiði að stuðla að farsæld barns og er veitt af þeim
þjónustuveitendum sem eru best til þess fallnir að mæta þörfum barns hverju sinni.

 

Fullorðnir

Heildræn þjónustu í þágu einstaklinga með fjölþættar stuðningsþarfir

Þegar fyrir liggur beiðni einstaklings um að heildræn þjónusta skuli hefjast getur ráðgjafi/málstjóri aflað upplýsinga um aðstæður einstaklings frá þverfaglegu þjónustuteymi, þjónustuveitendum og þeim sem veita almenna þjónustu í þágu einstaklingsins. Markmið með upplýsingaöflun á þessu stigi er að ráðgjafi/málstjóri fái yfirsýn yfir mál einstaklings og hafi þar með forsendur til að veita heildræna þjónustu.
Í heildrænni þjónustu felst að ráðgjafi/málstjóri vinnur með upplýsingar um aðstæður einstaklings og hefur eftir atvikum frekari samskipti við þjónustuveitendur og aðra.
Ef fyrir liggur beiðni einstaklings um heildræna þjónustu og ástæða er til að ætla að einstaklingur þurfi fjölþættan stuðning margra þjónustukerfa skal sveitarfélag þar sem einstaklingur á lögheimili tilnefna málstjóra í þágu gæða og samfellu í þjónustu við einstakling. Þjónustuaðilar og einstaklingurinn sjálfur mynda þverfaglegt þjónustuteymi undir forystu félagsþjónustunnar. Aðrir sem koma að stuðningi og aðstoð við einstaklinginn geta einnig verið í þverfaglegu þjónustuteymi.

Skýringar

Upplýsingar um aðstæður einstaklings

Vinnsla upplýsinga um aðstæður einstaklings er heimil hjá ráðgjöfum/málstjórum og þeim sem veita almenna þjónustu í þágu gæða og samfellu í þjónustu við einstakling. Með vinnslu persónuupplýsinga er m.a. átt við söfnun, skráningu, varðveislu, miðlun og samkeyrslu upplýsinga um aðstæður einstaklings, þ.m.t. viðkvæmar persónuupplýsingar og upplýsingar um refsiverða háttsemi og ætlaða refsiverða háttsemi. Gæta ber að meðalhófi við vinnslu persónuupplýsinga á grundvelli laga þessara og skal ekki vinna með persónuupplýsingar umfram það sem nauðsynlegt má telja í hverju einstöku tilviki í þágu tilgangsins.

Þverfaglegt þjónustu teymi

Þverfaglegt þjónustuteymi er sá sem veitir heildræna/samþætta þjónustu á vegum ríkis eða sveitarfélags og/eða einkaaðili sem veitir samskonar þjónustu á grundvelli þjónustusamnings. Til þjónustuteymis teljast t.d. leikskólar, grunnskólar, frístundaheimili, félagsmiðstöðvar, framhaldsskólar, heilsugæsla, sérhæfð heilbrigðisþjónusta, lögregla, og félagsþjónusta. Teymið hefur það hlutverk að gera stuðningsáætlun, útfæra þjónustu, hafa samráð um þjónustuna og tryggja samfellu og gæði hennar.

Almenn þjónusta

Allt skipulagt starf sem er á vegum annarra en þjónustuteymis. Sjálfstætt starfandi sérfræðingar,
íþrótta-, lista- og æskulýðsstarf, frjáls félaga- og hagsmunasamtök.

Ráðgjafi/málastjóri

Ráðgjafi/málstjóri hefur það hlutverk að veita notandanum leiðbeiningar og ráðgjöf sem og að tryggja að hann geti nýtt sér þjónustu og stuðning stofnana samfélagsins og annars stuðnings frá sínu félagslega tengslaneti. Þegar samþykki liggur fyrir um gerð stuðningsáætlunar er skipaður málstjóri í samráði við notanda.
Ráðgjafi/málstjóri ber ábyrgð á gerð stuðningsáætlunar og að stýra stuðningsteymi ef það á við. Hann fylgir því eftir að þjónusta sé veitt í samræmi við stuðningsáætlun/einstaklingsáætlun. Hann veitir þeim sem sitja í stuðningsteymi ráðgjöf og upplýsingar um heildræna þjónustu í þágu einstaklings.

Heildræn Þjónusta

Skipulögð og heildræn þjónusta sem hefur það að markmiði að tryggja gæði og stuðla að samfellu í þjónustu við einstakling og er veitt af þeim þjónustuveitendum sem eru best til þess fallnir að mæta þörfum einstaklings hverju sinni.

Persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga

Einstaklingur lýsir því yfir með undirskrift sinni að vinnsla upplýsinga um aðstæður hans er heimil hjá ráðgjafa/málstjóra. Honum er því heimilt að afla upplýsinga frá þeim aðilum sem veita almenna þjónustu og öðrum þjónustuveitendum til að tryggja gæði og samfellu í þjónustu. Tilgangur með vinnslu upplýsinganna sem felur í sér miðlun upplýsinga er að veita einstaklingum heildræna þjónustu.
Með vinnslu persónuupplýsinga er m.a. átt við söfnun, skráningu, varðveislu, miðlun og samkeyrslu upplýsinga um aðstæður einstaklings. Þ.m.t. viðkvæmar persónuupplýsingar og upplýsingar um refsiverða háttsemi og ætlaða refsiverða háttsemi. Vinnsla upplýsinga kann eftir tegund þjónustu að lúta að eftirfarandi flokkum upplýsinga varðandi umsækjanda.

Almennar persónuupplýsingar: Íbúaupplýsingar (s.s. nafn, kt., lögheimili/aðsetur, símanúmer, netfang, fjölskyldugerð), fjárhags- og eignaupplýsingar, félagsleg staða og aðstaða, og aðrar upplýsingar sem umsækjandi hefur komið á framfæri í umsóknarferli um þjónustu.

Viðkvæmar persónuupplýsingar: heilsufarsupplýsingar.
Gæta ber að meðalhófi við vinnslu persónuupplýsinga á grundvelli laga þessara og skal ekki vinna með persónuupplýsingar umfram það sem nauðsynlegt má telja í hverju einstöku tilviki í þágu tilgangsins.
Heimild til vinnslu framangreindra persónuupplýsinga grundvallast á samþykki einstaklings, skv. 1. tl. 1. mgr. 9. gr. og 1. tl. 11 gr. laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
Hafnarfjarðarkaupstaður gætir öryggis persónuupplýsinga með viðeigandi skipulagslegum og tæknilegum ráðstöfunum, þ. á m. aðgangsstýringum og dulkóðun. Allir starfsmenn sem veita þjónustu í þágu einstaklings eru bundnir þagnarskyldu skv. X. Kafla stjórnsýslulaga um upplýsingar sem þeir hafa orðið áskynja um vegna verkefna samkvæmt þessum kafla og V. kafla.
Einstaklingar sem óskað hafa eftir heildræni þjónustu geta hvenær sem er dregið beiðni sína til baka. Felur afturköllun þá í sér að sú þjónusta sem einstaklingur nýtur verður ekki heildræn í framhaldinu. Erindi um afturköllun samþykkis skal berast til fjölskyldu- og barnamálasviðs Hafnarfjarðarkaupstaðar.
Ábyrgðaraðili vinnslunnar er fjölskyldu- og barnamálasvið Hafnarfjarðarkaupstaður. Frekari upplýsingar um heildræna þjónustu í þágu einstaklinga má finna á heimasíðu sveitarfélagsins, www.hafnarfjordur.is. Ásamt nánari upplýsingum um vinnslu persónuupplýsingu sem fram fer hjá sveitarfélaginu í persónuverndarstefnu þess sem jafnframt er aðgengileg á www.hafnarfjordur.is
Sérstök athygli er vakin á því að ef þú ert ósátt/ur við meðferð Hafnarfjarðarkaupstaðar á persónuupplýsingum þínum getur þú ávallt haft samband við persónuverndarfulltrúa Hafnarfjarðarkaupstaðar (personuvernd@hafnarfjordur.is eða sent erindi til Persónuverndar.

Börn og fjölskyldur þeirra

Um samþættingu þjónustu skv. V. kafla laga um samþættingu þjónustu nr. 86/2021

Öll börn og foreldrar skulu hafa aðgang að þjónustu tengiliðar við samþættingu fyrsta stigs þjónustu.
Þegar fyrir liggur beiðni foreldra og/eða barns um að samþætting skuli hefjast getur tengiliður aflað upplýsinga um aðstæður barns frá þjónustuveitendum og þeim sem veita almenna þjónustu í þágu farsældar barns. Markmið með upplýsingaöflun á þessu stigi er að tengiliður fái yfirsýn yfir mál barnsins og hafi þar með forsendur til að leiða samþættingu þjónustunnar.
Í samþættingu felst að tengiliður vinnur með upplýsingar um aðstæður barns og hefur eftir atvikum frekari samskipti við þjónustuveitendur og aðra. Ef samþættingu hefur verið komið á geta þjónustuveitendur og þeir sem veita almenna þjónustu í þágu farsældar barns miðlað upplýsingum sín á milli í þágu samþættingar, þ.e. án þess að upplýsingarnar fari í gegnum tengilið.
Ef fyrir liggur beiðni foreldra og/eða barns um samþættingu þjónustu og ástæða er til að ætla að barn þurfi fjölþætta þjónustu á öðru og/eða þriðja stigi til lengri tíma skal sveitarfélag þar sem barn á lögheimili tilnefna málstjóra þjónustu í þágu farsældar barnsins. Málstjóri skal stofna stuðningsteymi þar sem sitja fulltrúar þjónustuveitenda sem veita barni þjónustu. Heimilt er að bjóða þeim sem veita almenna þjónustu í þágu farsældar barns að taka sæti í stuðningsteymi ef þörf krefur.

Skýringar

Upplýsingar um aðstæður barns

Vinnsla upplýsinga um aðstæður barnsins er heimil hjá tengiliðum, málstjórum, þjónustuveitendum og þeim sem veita almenna þjónustu í þágu farsældar barns við framkvæmd verkefna. Með vinnslu persónuupplýsinga er m.a. átt við söfnun, skráningu, varðveislu, miðlun og samkeyrslu upplýsinga um aðstæður barns, þ.m.t. viðkvæmar persónuupplýsingar og upplýsingar um refsiverða háttsemi og ætlaða refsiverða háttsemi. Gæta ber að meðalhófi við vinnslu persónuupplýsinga á grundvelli laga þessara og skal ekki vinna með persónuupplýsingar umfram það sem nauðsynlegt má telja í hverju einstöku tilviki í þágu tilgangsins.

Þjónustuveitandi

Sá sem veitir farsældarþjónustu á vegum ríkis eða sveitarfélags og/eða einkaaðili sem veitir samskonar þjónustu á grundvelli þjónustusamnings. Til þjónustuveitenda teljast t.d. leikskólar, grunnskólar, frístundaheimili, félagsmiðstöðvar, framhaldsskólar, heilsugæsla, sérhæfð heilbrigðisþjónusta, lögregla, félagsþjónusta og barnavernd.

Almenn þjónusta

Allt skipulagt starf sem er á vegum annarra en þjónustuveitenda. Sjálfstætt starfandi sérfræðingar, íþrótta-, lista- og æskulýðsstarf, frjáls félaga- og hagsmunasamtök.

Tengiliður

Frá fæðingu og þar til barn hefur nám í leik- eða grunnskóla er tengiliður starfsmaður heilsugæslustöðvar eða heilbrigðisstofnunar í heilbrigðisumdæmi barns. Sama á við ef þörf er á samþættingu þjónustu á meðgöngu. Þegar barn er við nám í leik-, grunn- eða framhaldsskóla er tengiliður starfsmaður skólans þar sem barn er við nám. Hlutverk tengiliðar er að veita upplýsingar um þjónustu í þágu farsældar barns. Tryggja aðgang að frummati og styðja við samþættingu þjónustu allra þjónustuveitenda. Fylgja eftir
beiðni foreldra/barns um samþættingu þjónustu á öðru og þriðja stigi

Málastjóri

Sá sem leiðir samþættingu þjónustu í þágu farsældar barns sem hefur þörf fyrir annars eða þriðja stigs þjónustu. Málstjóri hefur hagsmuni barns að leiðarljósi. Hlutverk málstjóra er að veita ráðgjöf og upplýsingar um þjónustu í þágu farsældar barns. Aðstoða við að tryggja aðgang að mati og/eða greiningu á þörfum barns. Bera ábyrgð á gerð stuðningsáætlunar og að stýra stuðningsteymi. Fylgja því eftir að þjónusta sé veitt í samræmi við stuðningsáætlun. Veita þeim sem sitja í stuðningsteymi ráðgjöf og
upplýsingar um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barns.

Samþætt þjónusta

Skipulögð og samfelld þjónusta sem hefur það að markmiði að stuðla að farsæld barns og er veitt af þeim
þjónustuveitendum sem eru best til þess fallnir að mæta þörfum barns hverju sinni.

Persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga

Foreldrar og/eða barn lýsa því yfir með undirskrift sinni að vinnsla upplýsinga um aðstæður barnsins er heimil hjá tengiliðum, málstjórum, þjónustuveitendum og þeim sem veita almenna þjónustu í þágu farsældar barns við framkvæmd verkefna sinna. Með vinnslu persónuupplýsinga er m.a. átt við söfnun, skráningu, varðveislu, miðlun og samkeyrslu upplýsinga um aðstæður barns, þ.m.t. viðkvæmar persónuupplýsingar og upplýsingar um refsiverða háttsemi og ætlaða refsiverða háttsemi. Gæta ber að meðalhófi við vinnslu persónuupplýsinga á grundvelli laga þessara og skal ekki vinna með persónuupplýsingar umfram það sem nauðsynlegt má telja í hverju einstöku tilviki í þágu tilgangsins.
Heimild til vinnslu framangreindra persónuupplýsinga grundvallast á lagaheimild, skv. 3. tl. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, og er lagaheimild til vinnslunnar að finna í 23. gr. laga nr. 86/2021.
Þjónustuveitendur og þeir sem veita almenna þjónustu í þágu farsældar barns eru bundnir þagnarskyldu skv. X. Kafla stjórnsýslulaga um upplýsingar sem þeir hafa orðið áskynja um vegna verkefna samkvæmt þessum kafla og V. kafla.
Einstaklingar sem óskað hafa eftir samþættri þjónustu geta hvenær sem er dregið beiðni sína til baka. Felur afturköllun þá í sér að sú þjónusta sem barnið nýtur verður ekki samþætt í framhaldinu. Erindi um afturköllun samþykkis skal berast til viðkomandi þjónustuveitanda eða þeirra sem veita almenna þjónustu í þágu farsældar barna. Þegar aðstæður barns breytast, t.d. það færist milli skólastiga eða flyst í annað sveitarfélag, ber fyrri tengilið að sjá til þess að nýr tengiliður fái nauðsynlegar upplýsingar um aðstæður barnsins.
Ábyrgðaraðili vinnslunnar er fjölskyldu- og barnamálasvið Hafnarfjarðarkaupstaður. Frekari upplýsingar um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna má finna á heimasíðu sveitarfélagsins, www.hafnarfjordur.is. Ásamt nánari upplýsingum um vinnslu persónuupplýsingu sem fram fer hjá sveitarfélaginu í persónuverndarstefnu þess sem jafnframt er aðgengileg á www.hafnarfjordur.is
Sérstök athygli er vakin á því að ef þú ert ósátt/ur við meðferð Hafnarfjarðarkaupstaðar á persónuupplýsingum þínum getur þú ávallt haft samband við persónuverndarfulltrúa Hafnarfjarðarkaupstaðar (personuvernd@hafnarfjordur.is) eða sent erindi til Persónuverndar.