Sumarafleysingar á heimili fyrir fatlað fólk – Berjahlíð

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 04.03.2026

Umsóknarfrestur til: 25.03.2026

Tengiliður: Kristín Anna Th. Jensdóttir

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öfluga starfsmenn til sumarafleysinga í lærdómsríkt starf á heimili fatlaðs fólks, staðsett í Berjahlíð. Unnið er eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar, með áherslu á að íbúum líði vel í þægilegu og öruggu umhverfi heimilisins.

Spennandi og skemmtilegt starf með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Starfshlutfall er 60-100% eða eftir samkomulagi og þarf viðkomandi að geta unnið morgun-, kvöld-, nætur og helgarvaktir. 

 Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum
  • Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd
  • Almenn heimilisstörf
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  •  Íslenskukunnátta skilyrði, A2 tungumálastaðall ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki í starfi
  • Líkamleg geta til þess að sinna verkefnum á vinnustað 
  • Ökuréttindi

Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og skilyrði er að hafa hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristín Anna Th. Jensdóttir forstöðumaður í síma 585-5761 eða á netfanginu kristinj@hafnarfjordur.is

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.

Umsóknarfrestur er til og með 25. mars 2026.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf