Skóla- og frístundaliðar í Krakkaberg – Setbergsskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 27.07.2026

Umsóknarfrestur til: 10.08.2026

Tengiliður: maria@setbergsskoli.is

Setbergsskóli auglýsir eftir skóla- og frístundaliðum með fjölbreytta hæfni og áhuga á að vinna með börnum á frístundaheimilinu Krakkabergi skólaárið 2026 – 2027. Starfshlutfall er 30-50%. Vinnutími er frá kl 13:00-16:30, alla virka daga. 

Frístundaheimilið er fyrir nemendur í 1. – 4. bekk Setbergsskóla. Þar gefst færi á að lengja viðveru barna eftir að skólastarfi lýkur.