Umsóknarfrestur

Rafræn meðmælasöfnun fyrir sveitar-stjórnarkosningar 2026

Fréttir Tilkynningar

Yfirkjörstjórn hefur opnað fyrir rafræna meðmælasöfnun í Hafnarfirði fyrir framboð til sveitarstjórnar. Söfnunin er opin til 10. apríl nk., kl. 12:00

SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 2026

Yfirkjörstjórn hefur opnað fyrir rafræna meðmælasöfnun í Hafnarfirði fyrir framboð til sveitarstjórnar. Söfnunin er opin til 10. apríl nk., kl. 12:00.

Stofnun meðmælasöfnunar til sveitarstjórnar fer fram inni á Ísland.is

Mælst er til þess að oddvitar framboða stofni söfnun fyrir sitt framboð, nafn þeirra og fæðingardagur birtist sem stofnandi söfnunar.

Einnig er heimilt að safna meðmælum á pappír en mælst er til þess að þau séu slegin inn í rafræna meðmælendakerfið áður en frumritum meðmælanna er skilað inn ásamt framboðstilkynningu.

Hægt er að mæla með framboðum hér:

Hverjum framboðslista skal fylgja:

  • Staðfesting á skráðu heiti og listabókstaf stjórnmálasamtaka.
  • Yfirlýsing allra þeirra sem eru á listanum um að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á listann, undirrituð eigin hendi eða með fullgildri rafrænni undirskrift.
  • Nöfn tveggja umboðsmanna.
  • Meðmælendalisti – að lágmarki 80 og að hámarki 160 kjósenda í Hafnarfirði.

Yfirkjörstjórn hefur opnað fyrir rafræna söfnun meðmæla á Ísland.is og hvetur framboð til að nýta þann kost. Nánari upplýsingar um rafræna meðmælasöfnun er að finna á kosning.is.

Sé meðmælum safnað á pappír fer yfirkjörstjórn þess á leit við framboð að meðmælalistar verði jafnframt afhentir á tölvutæku formi sem Exel skrá.

Varðandi nánari skilyrði og framboð til sveitarstjórnarkosninga er vísað til Vll. og X. kafla kosningalaga nr. 112/2021.

Vakin er athygli á eftirfarandi reglugerðum:

  • Reglugerð um framboð og meðmæli við sveitarstjórnarkosningar
  • Reglugerð um réttindi og skyldur umboðsmanna við framkvæmd kosninga

Á vefnum kosning.is er að finna tilkynningu um framboð og umboðsmenn fyrir framboðslista ásamt söfnun meðmæla hyggist framboð safna meðmælum á pappír.

Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga í Hafnarfirði sem fram fara laugardaginn 16. maí 2026 rennur út föstudaginn 10. apríl nk., kl. 12.00.

Yfirkjörstjórn mun þann dag hafa aðsetur í fundarsal bæjarráðs Hafnarfjarðar, Strandgötu 6, 2. hæð frá kl. 10:00 – 12:00 og veita framboðslistum viðtöku.

Yfirkjörstjórn mun á sama stað halda fund laugardaginn 11. apríl nk., kl. 12:00 til þess að úrskurða um framboð og listabókstafi að viðstöddum umboðsmönnum framboðslista.

  • Nánari upplýsingar og leiðbeiningar má nálgast á vefnum:  www.kosning.is

Hafnarfirði 4. mars 2026

Yfirkjörstjórn Hafnarfjarðar,

Þórdís Bjarnadóttir

Helena Mjöll Jóhannsdóttir

Hildur Helga Gísladóttir

Ábendingagátt