Haustsópun innan hverfa hefst á mánudaginn
Götusópun innan hverfa hefst mánudaginn 12.október. Hafnarfirði er skipt upp í 17 hverfi og verður eitt hverfi tekið fyrir á hverjum degi.
Bænum skipt í hverfi
Hafnarfirði er skipt upp í 17 hverfi og verður eitt hverfi tekið fyrir á hverjum degi. Daginn fyrir sópun í hverfi eru sett upp skilti með upplýsingum um framkvæmdina og íbúar upplýstir eftir því sem kostur gefst. Auk þess eru smáskilaboð send út á alla þá íbúa sem eru með númer sín skráð á 1819.is. Götusópun innan hverfa hefst mánudaginn 12.október í hverfi 1 (miðbænum).
Samvinna skilar bestum árangri
Hafnarfjarðarbær hvetur íbúa og fyrirtæki til að taka virkan þátt í hreinsuninni. Mikilvægt er að götur séu auðar af bílum þann dag sem sópað er svo hægt sé að hreinsa kantsteina og svæði milli bílastæða með fullnægjandi hætti. Jafnframt er upplagt að nýta tækifærið og sópa eða taka til í nærumhverfi sínu. Með sameiginlegu átaki verður bærinn allur snyrtilegri og fallegri fyrir veturinn.
Fyrirspurnir og ábendingar
Hafnarfjarðarbær tekur ávallt vel á móti ábendingum frá íbúum um það sem betur má fara. Hægt er að senda inn ábendingar í ábendingagátt bæjarins, hafa samband við þjónustuver í síma 585-5500 eða senda tölvupóst á hafnarfjordur@hafnarfjordur.is
