Helgin: Ókeypis safnaævintýri og sögur í skuggunum

Fréttir

Safnaferð, sundsprettur eða skuggaleikhús? Það þarf ekki að kosta mikið að njóta helgarinnar í Hafnarfirði.

Helgin er ævintýri í Hafnarfirði

Safnaferð, sundsprettur eða skuggaleikhús? Það þarf ekki að kosta mikið að njóta helgarinnar í Hafnarfirði. Ókeypis er inn í Hafnarborg og Byggðasafnið og börn og eldra fólk fara frítt í sund.

Fjöltyngd sögusmiðja bíður fjölskyldna í Hafnarborg á sunnudag og hlátur og tónlist fylla Bæjarbíó um helgina 9.–11. október.

Segjum sögur saman

Hvað gerist á draumkenndum degi í lífi persónu sem þú býrð sjálf til? Sunnudaginn 11. október kl. 13–15 bjóða Hafnarborg og GETA börnum og fullorðnum að skapa saman í fjöltyngdri sögusmiðju.

Þátttakendur búa til brúðupersónur, semja stuttar sögur og gæða þær lífi með skuggaleikhúsi. Tess Rivarola og Anne Rombach leiða smiðjuna á íslensku, spænsku, ensku og þýsku. Fjölskyldur eru sérstaklega hvattar til að nýta móðurmál sín við sögugerðina.

Smiðjan er opin öllum aldurshópum og engin reynsla af listsköpun er nauðsynleg. Börn mæta í fylgd foreldris eða forráðamanns. Þátttaka er ókeypis.

Ókeypis list og ferð í fortíðina

Tilvalið er að nýta heimsóknina í Hafnarborg og skoða sýningarnar tvær sem þar standa yfir. Haustsýningin spássían beinir athyglinni að krókum, kimum og möguleikum sýningarrýmisins. Í Sverrissal er Bjarmaband, sýning á verkum Frosta Fjalars, þar sem litir, form og hrynjandi ráða ferðinni. Hafnarborg er opin kl. 12–17 alla helgina og aðgangur er ókeypis.

Í Byggðasafninu bíður saga bæjarins. Pakkhúsið, Sívertsens-hús og Beggubúð eru opin kl. 11–17 á laugardag og sunnudag. Þar má skoða leikföng fyrri tíma, kynnast lífinu í elsta húsi Hafnarfjarðar og líta inn í gamla verslun. Í Pakkhúsinu stendur einnig yfir sýningin Handboltabærinn Hafnarfjörður. Aðgangur er ókeypis.

Skellum okkur í sund

Sundferð með fjölskyldunni eða vinum er alltaf góð helgarhugmynd. Frítt er í sundlaugar Hafnarfjarðar fyrir börn 17 ára og yngri og fólk 67 ára og eldra.

  • Ásvallalaug og Suðurbæjarlaug eru opnar kl. 8–18 á laugardag. Á sunnudag er Ásvallalaug opin kl. 8–17, Suðurbæjarlaug kl. 8–21.
  • Athugið að Sundhöll Hafnarfjarðar er opin kl. 6.30–21 á föstudag en lokuð á laugardag og sunnudag.

Anime og síðasta sýningarhelgi

Animeaðdáendur á aldrinum 14–16 ára hittast á Bókasafni Hafnarfjarðar laugardaginn 10. október kl. 15–17. Þar er horft, lesið, leikið og skapað undir leiðsögn Joninu „KleineKonan“ Strumann. Bókasafnið í Firði er opið kl. 11–17 bæði laugardag og sunnudag.

Þetta er líka síðasta helgin til að sjá sýninguna Skissur eftir Sigurjón Má Svanbergsson í Litla Gallerý. Hús bæjarins fá þar líf á pappír með frjálslegum línum og litum. Sýningunni lýkur sunnudaginn 11. október.

Hlátur í Bæjarbíó

Björk Jakobs, Salka Sól og Selma Björns stíga á svið í Bæjarbíó föstudaginn 9. október kl. 19 með sýninguna Bíddu bara – ÞETTA REDDAST. Þar blandast sketsar, uppistand og frumsamin lög við sögur úr lífinu.

Fermingarafmæli á sunnudag

Fermingarafmælismessa verður sunnudaginn 11. október kl. 11 í Hafnarfjarðarkirkju. Fagnað verður 50, 60, 70 og 75 ára fermingarafmælum og Cantus, kór kirkjunnar, syngur. Að messu lokinni verður hádegisverður þar sem Ingvar Viktorsson rifjar upp sögur og minningar. Skráning í hádegisverðinn er nauðsynleg í síma 520 5700.

Já, njótum helgarinnar í Hafnarfirði.

 

Ábendingagátt