Þroskaþjálfi – Skammtímadvöl Hnotubergi
Sækja um starfUmsóknarfrestur frá: 06.03.2026
Umsóknarfrestur til: 22.03.2026
Tengiliður: Hrönn Harðardóttir
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða þroskaþjálfa til starfa á skammtímadvöl fyrir fötluð ungmenni, staðsett í Setbergshverfi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 15. maí n.k. eða eftir samkomulagi
Starfshlutfall er 80% – 90% og er unnið í vaktavinnu, viðkomandi þarf að geta unnið á morgun, kvöld- og helgarvöktum. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Framfylgir hlutverki og markmiðum starfstöðvar
- Ber ábyrgð á skipulagningu, samhæfingu, áætlanagerð, skýrslugerð, upplýsingamiðlun, ráðgjöf, fræðslu og samskiptum við aðrar stofnanir
- Stuðla að virkni, velferð og vellíðan þjónustunotend, leitast við að auka lífsgæði og sjálfstæði fatlaðs fólks og stuðla að valdeflingu þeirra
- Setja upp og fylgja eftir þjónustuáætlunum sem og starfsáætlun
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Þroskaþjálfamenntun og starfsleyfi sem þroskaþjálfi.
- Reynsla af skipulagi faglegs starfs á svið þroskaþjálfunar æskileg
- Samstarf- og skipulagshæfileikar
- Frumkvæði, samviskusemi, hæfni í mannlegum samskiptum
- Jákvætt viðmót og rík þjónustulund
- Líkamleg geta til að sinna verkefnum á vinnustað
- Íslenskukunnátta skilyrði, A2 tungumálastaðall ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)
Umsækjandi þarf að hafa hreint sakavottorð.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Hrönn Harðardóttir forstöðuþroskaþjálfi í síma: 565-2545, netfang: hronnha@hafnarfjordur.is
Umsóknarfrestur er til og með 22. mars 2026
Umsókn fylgi greinagóð ferilskrá ásamt leyfisbréfi.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Þroskaþjálfafélag Íslands.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.