Drög að aðgerðaáætlun vegna hávaða – athugasemdir óskast
Hafnarfjarðarbær kynnir bæjarbúum drög að aðgerðaáætlun gegn hávaða sem byggir á niðurstöðum kortlagningar hávaða frá árinu 2022, ásamt hávaðakortum sem sýna hljóðstig í 4 m hæð yfir jörðu. Íbúar eru hvattir til að kynna sér áætlunina og senda athugasemdir, ef einhverjar eru fyrir 15. júní nk. Gert er ráð fyrir því að áætlunin liggi svo fyrir í haust eftir staðfestingu bæjarstjórnar.
Athugasemdir óskast fyrir 15. júní nk.
Hafnarfjarðarbær kynnir bæjarbúum drög að aðgerðaáætlun gegn hávaða fyrir árin 2023 til 2028. Gerð aðgerðaáætlunar gegn hávaða er hluti af tilskipun Evrópusambandsins um umhverfishávaða (2002/49/EC), sem var innleidd á Íslandi með reglugerð um kortlagningu hávaða og aðgerðaáætlanir nr. 1000/2005 og hefur það að markmiði að draga úr hávaða og óæskilegum áhrifum hans. Aðgerðaáætlunin er byggð á niðurstöðum kortlagningar hávaða frá árinu 2022, ásamt hávaðakortum sem sýna hljóðstig í 4 m hæð yfir jörðu.
Skoða drög að aðgerðaáætlun gegn hávaða
Íbúar eru hvattir til að kynna sér áætlunina og senda athugasemdir, ef einhverjar eru, til Hafnarfjarðarbæjar á netfangið: helgas@hafnarfjordur.is fyrir 15. júní nk.
Áætlun til staðfestingar haustið 2026
Hafnarfjarðarbær mun að loknum kynningartíma taka allar athugasemdir sem borist hafa til umfjöllunar og gera breytingar á áætluninni ef ástæða þykir til. Gert er ráð fyrir því að áætlunin liggi svo fyrir í haust eftir staðfestingu bæjarstjórnar.
Áætlunin er til kynningar til 15. júni nk. og geta bæjarbúar á þeim tíma gert athugasemdir við hana.