Hafnarfjörður er tilbúinn fyrir almyrkvann

Fréttir Tilkynningar

Risagleraugu eru komin á sinn stað á Hamrinum og við Keili. Sólmyrkvagleraugu bíða þín á bókasafninu, sundlaugunum, þjónustuveri og byggðasafninu. Tryggt hefur verið að götulýsing fari ekki sjálfkrafa í gang þegar myrkrið skellur á. Hafnarfjörður er tilbúinn fyrir almyrkvann miðvikudaginn 12. ágúst.

Almyrkvinn 12. ágúst

Nú styttist þar til tunglið gengur fyrir sólina og almyrkvi verður sýnilegur frá Hafnarfirði í fyrsta sinn í aldir. Undirbúningur bæjarins er á lokametrunum. Veðrið leikur stórt hlutverk, eins og alltaf í íslenskri sögu – við krossum fingur og vonum það besta. Almyrkvinn er miðvikudaginn 12. ágúst frá kl. 16.47. Hann nær hámarki 17.48.

Risagleraugun komin upp

Risastóru sólmyrkvagleraugun eru komin á sinn stað á Hamrinum og við golfvöll Keilis. Þar gefst bæjarbúum og gestum tækifæri til að stíga inn í gleraugun, taka myndir og eiga skemmtilega minningu frá þessum einstaka degi.

Hamarinn, Ástjörn við Ásvelli og svæðið við golfvöll Keilis eru staðirnir þar sem við getum notið myrkvans saman.

  • Hægt er að komast á salerni í Flensborgarskóla og inni á Ásvöllum.

Almyrkvinn verður sýnilegur í allt að 68 sekúndur í Hafnarfirði, eftir staðsetningu. Deildarmyrkvinn hefst um kl. 16:47 og hámark almyrkvans verður um kl. 17:48.

Slökkt verður á ljósum

Það dimmir skyndilega um miðjan dag þegar tunglið hylur sólina. Hafnarfjarðarbær hefur því sérstaklega tryggt að götulýsing bæjarins bregðist ekki við myrkrinu með því að kvikna sjálfkrafa. Þannig fær myrkrið að njóta sín – og þið þessa einstaka viðburðar.

Sólmyrkvagleraugu víða um bæinn

Bærinn býður öllum hafnfirskum börnum, 17 ára og yngri, sólmyrkvagleraugu. Mikilvægt er að muna að ekki má horfa beint í sólina án viðurkenndra sólmyrkvagleraugna.

  • Gleraugun bíða þín í Ásvallalaug, Bókasafni Hafnarfjarðar, Byggðasafninu, Hafnarborg og þjónustuveri bæjarins.

Já, þetta eru viðurkennd sólmyrkvagleraugu. En eins og okkar eini sanni stjörnu-Sævar segir: Við þurfum þau aðeins þegar við horfum beint í sólu.

Þúsundir á sólmyrkvahátíð Bjarkar

Búist er við miklu lífi í Hafnarfirði á þessum einstaka degi. Auk þeirra sem koma saman á góðum útsýnisstöðum í bænum er von á þúsundum gesta á Echolalia – Sólmyrkvahátíð Bjarkar og Smekkleysu á Víðistaðatúni.

Götulokanir verða vegna hátíðarinnar. Sjáðu nánar hér.

Almyrkvi er einstakt fyrirbæri og sá fyrsti sem sést hér á höfuðborgarsvæðinu frá 1433.

  • Lestu um almyrkvann hér á síðu stjörnu-Sævars solmyrkvi2026.is
  • Read about the Solar Eclipse in English here

Hafnarfjörður er tilbúinn. En þú?

Ábendingagátt