Skóla- og frístundaliði í frístundaheimilið Hraunsel – Hraunvallaskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 02.09.2026

Umsóknarfrestur til: 13.09.2026

Tengiliður: Lars Jóhann Imsland

Hraunvallaskóli óskar eftir að ráða skóla- og frístundaliða í 30- 50% starf út skólaárið 2026-2027 í frístundaheimilið Hraunsel.

Um er að ræða starf sem felur í sér stuðning og aðstoð við nemendur í frístundaheimilinu Hraunseli eftir hádegi alla virka daga. Hraunsel býður upp á fjölbreytt tómstundastarf frá kl. 13:20 til kl. 16:30 alla virka daga, óháð getu, þroska eða fötlun barna. Sérstök áhersla er lögð á að koma til móts við alla hópa. Möguleiki er á að auka starfshlutfall með því að sækja líka um starf skóla- og frístundaliða í Hraunvallaskóla. 

Hraunvallaskóli hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Skólinn starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Kennarar vinna saman í teymum í kennslustundum og við skipulagningu og undirbúning kennslunnar. Nemendur í sama árgangi eru í sameiginlegum umsjónarhópum með sameiginlega umsjónarkennara á sínum heimasvæðum. Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta, samvinna og ábyrgð. 

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.hraunvallaskoli.is 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Aðstoðar við faglegt starf með nemendum 
  • Starfar samkvæmt leiðsögn frá næsta yfirmanni 
  • Stuðlar að góðum aga og jákvæðum samskiptum 
  • Fylgist með og aðstoðar nemendur í leik og starfi 
  • Leitast við að virkja sem flesta óháð getu eða þroska í fjölbreytt verkefni og taka fullan þátt í þeim verkefnum og viðburðum sem eru skipulögð 
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni 

Menntunar- og hæfniskröfur: 

  • Reynsla af starfi með börnum er æskileg 
  • Íslenskukunnátta skilyrði 
  • Almenn tölvukunnátta 
  • Mikill áhugi og metnaður til að starfa með börnum 
  • Uppbyggjandi í samskiptum, sveigjanleiki og mikil samstarfshæfni 
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum 
  • Stundvísi og samviskusemi 

Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars Jóhann Imsland skólastjóri, lars@hraunvallaskoli.is og Arnbjörg Mist Ásgeirsdóttir deildarstjóri Tómstundamiðstöðvar arnbjorga@hraunvallaskoli.is eða í síma 590 2800. 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar. 

Umsóknarfrestur er til og með 13. september 2026. 

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika