Deildarstjóri – Leikskólinn Arnarberg
Sækja um starfUmsóknarfrestur frá: 04.09.2026
Umsóknarfrestur til: 18.09.2026
Leikskólinn Arnarberg, staðsettur við Haukahraun 2 í Hafnarfirði, er fjögurra deilda leikskóli með áherslu á læsi í víðum skilningi. Einkunnarorð skólans eru „Læsi er leikur“, og þau endurspegla meginþráð alls starfsins.
Læsi í Arnarbergi nær yfir lestur bóka, líðan og velferð einstaklingsins, hreysti og umhverfi. Leikurinn er lykillinn að þroska barna á sviðum eins og hreyfingu, tungumáli, samskiptum, tilfinningum og sköpun.
Leiðaljós okkar er „Virðing, Samvinna og Traust“
Við leggjum áherslu á jöfnuð og rétt allra, og viljum stuðla að umburðarlyndi, samkennd og samvinnu. Markmiðið er að börnin verði sterkari og sjálfstæðari einstaklingar sem takast á við lífið með gleði og öryggi.
Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Vinnur að og ber ábyrgð á uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra
- Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati á faglegu starfi deildarinnar
- Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á miðlun upplýsinga
- Ber ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og að öll börn fái kennslu og umönnun við hæfi
- Ber ábyrgð á allri foreldrasamvinnu
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf sem kennari (fylgi umsókn)
- Reynsla af starfi deildarstjóra og með ungum börnum æskileg
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
- Góð samskiptahæfni og frumkvæði
- Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
- Einlægur áhugi á velferð barna
- Góð tölvukunnátta
- Góð íslenskukunnátta er áskilin. Miðað er við hæfniviðmið C1 samkvæmt viðmiðum Evrópska tungumálarammans, Sjálsmatsrammi
Umsóknarfrestur er til og með 18.september 2026 n.k.
Um er að ræða tímabundin ráðning til 6 mánaða með möguleika á áframhaldandi ráðningu.
Ef ekki fæst starfsmaður með leyfisbréf, kemur Um er að ræða tímabundin deildastjórastaða.til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling með reynslu af starfi með börnum, skv. lögum nr. 95/2019.
Nánari upplýsingar veitir Bjarney Kristín Hlöðversdóttir leikskólastjóri bjarneyk@hafnarfjordur.is , sími:5553493.
Launakjör samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ/Félag leikskólakennara.
Fríðindi í starfi:
- Heilsuræktarstyrkur
- 75% afsláttur af leikskólagjöldum
- Forgangur á leikskóla
- Bókasafns- og sundkort
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins