Umsjónarkennari í unglingadeild – Skarðshlíðarskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 16.09.2026

Umsóknarfrestur til: 30.09.2026

Tengiliður: Ingibjörg Magnúsdóttir

Skarðshlíðarskóli óskar eftir drífandi og kraftmiklum umsjónarkennara í afleysingar fram að áramótum fyrir 8.bekk. Kennslugreinar eru íslenska og enska. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja. Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi. Mílan er órjúfanlegur hluti af skólastarfinu en í því felst að nemendur og starfsfólk fer út daglega og gengur, skokkar eða hleypur í 15 mínútur.

Innleiðing á UDL (Universal Design for Learning) hófst haustið 2020. UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám.

Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk. Í vetur eru um 540 nemendur í skólanum. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast íslensku- og ensku kennslu í unglingadeild og umsjón hjá 8.bekk
  • Taka þátt í uppbyggingu og mótun á skólastarfi
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans
  • Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
  • Haldgóð þekking á kennslufræði námsgreina á miðstigi og lestrarkennslu
  • Leikni í fjölbreyttum kennsluháttum, námaðlögun og samþættingu
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar gefa Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871 eða Margrét Lilja Pálsdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 6645861.

Umsóknarfrestur er til og með 30.09. 2026

Greinagóð ferilsskrá fylgi umsókn.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ. 

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Önnur störf