Vegaframkvæmdir – Reykjanesbraut

Framkvæmdir Tilkynningar

Malbikun og fræsing á Reykjanesbraut í norðurátt á milli Kaplakrika og Kauptúns föstudaginn 9.október og laugardaginn 10.október.

„Vegagerðin hefur gefið heimild til eftirtalinna verka ef veður leyfir föstudagskvöldið 9. október og laugardaginn 10. október.

Malbikun og fræsing á Reykjanesbraut í norðurátt á milli Kaplakrika og Kauptúns. Framkvæmdirnar munu standa yfir frá kl.20:00 föstudaginn 9.október til kl.16:00 laugardaginn 10.október. Lokað verður fyrir vinstri beygju á gatnamótum við Álftanesveg. Umferðin á Reykjanesbraut keyrir meðfram vinnusvæðinu. Lokun verður sett up samkvæmt meðfylgjandi lokunarplani.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.“

Sjá yfirlitsmynd.

Fyrirfram þakkir fyrir sýndan skilning!

Ábendingagátt