Neyðarkallinn 2026 kominn í hús í Hafnarfirði
Hafnarfjarðarbær heldur í góða hefð og styrkir Björgunarsveit Hafnarfjarðar með kaupum á Neyðarkallinum. Þórður Þórarinsson bæjarstjóri tók á móti Neyðarkallinum nú í morgunsárið.
Neyðarkallinn mikilvægur björgunarstarfi
Neyðarkallinn er kominn í hús í Hafnarfirði. Hafnarfjarðarbær styrkir Björgunarsveit Hafnarfjarðar með kaupum á Neyðarkallinum. Með því þakkar bærinn björgunarsveitarfólki fyrir óeigingjarnt sjálfboðaliðastarf og mikilvægt framlag til öryggis íbúa. Þórður Þórarinsson bæjarstjóri tók á móti Neyðarkallinum nú í morgunsárið.
Stuðningur við björgunarsveitirnar
Árleg sala Neyðarkallsins er ein mikilvægasta fjáröflun björgunarsveita landsins. Ágóðinn rennur til björgunarsveita og slysavarnadeilda og nýtist meðal annars til kaupa og endurnýjunar á björgunarbúnaði, þjálfunar og eflingar starfsins.
Neyðarkallinn hefur verið seldur frá árinu 2006 og er því orðinn fastur liður í fjáröflunarstarfi Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Á bak við hvern Neyðarkall stendur fólk sem er tilbúið að leggja allt til hliðar þegar hjálpar er þörf.
Alltaf tilbúin þegar kallið kemur
Björgunarsveit Hafnarfjarðar gegnir mikilvægu hlutverki í samfélaginu. Félagar sveitarinnar leggja fram ómetanlega sjálfboðavinnu við björgunarstörf, leitir, þjálfun og slysavarnir.
Hafnarfjarðarbær er jafnframt stoltur af því að eiga innan sinna raða starfsfólk sem tekur virkan þátt í björgunarsveitastarfi.
Hafnarfjarðarbær hvetur íbúa til að taka vel á móti björgunarsveitarfólki og styðja þetta mikilvæga starf með kaupum á Neyðarkallinum. Já, dagana 4.–8. nóvember, getum við svarað Neyðarkallinu og stuðlað þannig að öryggi okkar allra.
- Nánari upplýsingar um söfnunina má finna á vef Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Hafnarfjarðarbær hvetur ykkur öll til að styrkja þarft málefni.