Rétta jólatréð valið – tákn vináttu Cuxhaven og Hafnarfjarðar
Búið er að fella Cuxhaven-jólatréð sem mun prýða hjarta Hafnarfjarðar hér á aðventunni. Þetta er 12 metra normannsþinur sem vegur 1,6 tonn. Tréð er á leið til landsins.
Cuxhaven-jólatréð prýðir hjarta Hafnarfjarðar
Búið er að fella Cuxhaven-jólatréð sem prýðir hjarta Hafnarfjarðar hér á aðventunni. Þýski miðillinn Cuxhavener Nachrichten greinir frá því fyrir helgi að það hafi verið blendnar tilfinningar þegar tólf metra hár normannsþinur var felldur í garði Michaels Wolf í borgarhlutanum Altenbruch í Cuxhaven í Þýskalandi.
Tréð hafði staðið þar í 23 ár í garði Wolfs en þess bíði nú nýtt hlutverk. Það verði tákn vináttunnar sem hafi tengt Hafnarfjörð og Cuxhaven í meira en þrjá áratugi.
Miðillinn segir frá því að Wolf hafi fengið tréð að gjöf fyrir 23 árum. Á þeim tíma hafði það vaxið svo mikið að það hafi farið að teygja sig inn í limgerði og gisnað neðan til. Hann muni sakna trésins en sé ánægður með að það fái nú nýtt og fallegt hlutverk.
Wolf fékk þversnið af stofninum til minningar þegar tréð var fellt. Þar mátti telja 25 árhringi.
Gullfalleg vinátta
„Þetta er gullfalleg hefð sem hefur lifað í nær fjóra áratugi,“ segir Gísli Ó. Valdimarsson, formaður vinabæjarfélagsins hér heima, um jólatréð sem þessi vinabær Hafnarfjarðar í Þýskalandi, færir Hafnfirðingum ár hvert. Hefðin nær aftur til ársins 1988 og hefur skipað mikilvægan sess í samskiptum bæjanna síðan.
„Þetta skiptir miklu máli. Þjóðverjarnir leggja mikla rækt við sambandið og koma alltaf með sendinefnd til Hafnarfjarðar þegar tréð er afhent. Yfirborgarstjórinn kemur hingað í ár. Það sýnir hvað þeir meta vináttuna mikils,“ segir Gísli.
Tólf metrar og 1,6 tonn
Sagt er frá því í fréttinni að í upphafi hafi tvær til þrjár ljósaseríur dugað til að skreyta tréð en nú dugi varla tólf seríur til. Ljóst hafi verið að það vegi um 1,6 tonn.
Garðyrkjumeistarinn Richard Schütt hafi um árabil haft það verkefni að finna hentugt jólatré fyrir Hafnarfjörð fyrir hönd vinabæjarfélagsins Hafnarfjörður–Cuxhaven. Hann þekkti nágranna Michaels og þannig hafi komist á tengsl sem hafi leitt til þess að tréð var valið. Áður en tréð hafi verið fellt hafi þurfti að ganga úr skugga um að það uppfyllti íslenskar kröfur um heilbrigði innfluttra plantna.
Wilhelm Eitzen hafi tekið þátt í samstarfi vinabæjanna frá árinu 2008 og verið formaður vinabæjarfélagsins síðustu tíu ár. Hann segir við Cuxhavener Nachrichten ánægjulegt hve margir séu tilbúnir að gefa tré til verkefnisins. Við hátíðlega tendrun jólaljósanna í Hafnarfirði séu jafnan viðstaddir fulltrúar stjórnmálanna og sendiherra Þýskalands.
Eitzen lýsir því hversu sérstök stund það sé þegar meira en þúsund manns safnast saman í Jólaþorpinu, tónlist hljómar og allir njóta samverunnar. Jólatréð sé miðpunktur hátíðarinnar og haldi vinabæjarsamstarfinu lifandi.
Borgarstjóri Cuxhaven kemur
Stefnt er að því að kveikja hátíðlega á ljósum trésins föstudaginn 13. nóvember.
Auk Uwe Santjer, borgarstjóra Cuxhaven, kemur sendinefnd frá vinabæjarfélaginu í Cuxhaven. Þetta verður í fyrsta sinn sem borgarstjóri Cuxhaven er viðstaddur. En áður en að því kemur þarf tréð að ferðast langa leið. Það kemur með skipinu Helgafelli frá Cuxhaven með viðkomu í Svíþjóð til Íslands. Wolf Dick, fyrrverandi ræðismaður Íslands og félagi í vinabæjarfélaginu, sér um að skipuleggja flutninginn.
Áralöng vinátta
Wilhelm Eitzen leggur áherslu á í þýsku fréttinni að þessi áratugalanga hefð hafi mun dýpri merkingu en að senda jólatré milli landa.
Hann telur sérstaklega mikilvægt á tímum sem þessum að hlúa að vináttusamböndum á borð við það sem ríkir milli Cuxhaven og Hafnarfjarðar.
Myndast hafi persónuleg vináttutengsl í gegnum árin sem nái langt út fyrir hið formlega samstarf sveitarfélaganna. Samstarfið snúist ekki aðeins um gagnkvæmar heimsóknir eða að gefa jólatré einu sinni á ári. Það snúist fyrst og fremst um að halda tengslunum milli fólks lifandi, sýna hvert öðru áhuga og standa saman þvert á landamæri.
Rík tengsl við Þýskaland
Gísli þekkir Þýskaland vel. Hann hélt þangað árið 1985 til náms í byggingarverkfræði í Berlín, fyrst í Vestur-Berlín og síðar í sameinaðri borg. Hann upplifði því sjálfur söguleg tímamót þegar Berlínarmúrinn féll.
Hann segir frá því að Ása María Valdimarsdóttir, sem var formaður vinabæjarsamtakanna á sínum tíma, hafi fengið hann liðs við stjórnina. „Það er gaman að taka þátt í þessu starfi. Maður kynnist fjölda fólks og svo er þetta líka góð leið til að viðhalda þýskunni, bæði í töluðu og rituðu máli.“
Vinabæjasamstarfið snúist um miklu meira en árlegar heimsóknir og falleg jólatré. „Rauði þráðurinn í þessu starfi hefur alltaf verið að efla samskipti unga fólksins. Að gefa ungu fólki í Hafnarfirði og Cuxhaven tækifæri til að kynnast, heimsækja hvort annað og mynda tengsl. Það er það sem skiptir mestu máli og heldur vináttunni lifandi til framtíðar,“ segir hann.
Já, við hlökkum til að sjá kveikt á trénu 13. nóvember.