Jólaþorpið fullskipað – undirbúningur í fullum gangi
Jólaþorpið í Hafnarfirði opnar föstudaginn 13. nóvember. Undirbúningur fyrir þessa ómissandi jólahefð bæjarins er í fullum gangi. Öll 20 jólahúsin eru nú fullskipuð. Allir 100 umsækjendurnir sem sóttust eftir plássi í þorpinu hafa fengið svör.
Jólin koma í Hafnarfirði
Já, framundan eru sex hátíðlegar helgar með fjölbreyttum jólavarningi, skemmtilegri dagskrá og sannkallaðri jólastemningu í hjarta Hafnarfjarðar.
Áhugi á þátttöku í Jólaþorpinu hefur aldrei verið meiri og ljóst að úrvalið verður bæði fjölbreytt og spennandi. Gamlir góðir í bland við nýja mæta til leiks. Gestir geta hlakkað til að kaupa handverk, jólakransa, keramikvörur og ýmiss konar jólavarning, auk þess að gæða sér á nýsteiktu laufabrauði og jólapylsum.
„Jólaþorpið hefur þróast úr litlum jólamarkaði yfir í einn þekktasta aðventuviðburð landsins,“ segir Sunna Magnúsdóttir, verkefnastjóri menningar- og ferðamála hjá Hafnarfjarðarbæ, í viðtali við jólablað Morgunblaðsins.
Hún rifjar upp að fyrstu árin hafi verið mikið verkefni að fylla jólahúsin en nú sé staðan gjörbreytt. Eftirspurnin sé gríðarleg og mun fleiri vilji taka þátt en hægt sé að koma fyrir.
Sex helgar af jólagleði
Jólaþorpið er löngu orðið órjúfanlegur hluti af aðventunni í Hafnarfirði. Grýla og jólasveinarnir verða á sínum stað og nýju hafnfirsku bókaálfarnir, Una og Snotra, ætla einnig að heimsækja þorpið og gleðja yngstu gestina.
„Markmið okkar er að stemningin í þorpinu sé notaleg, hlýleg og afslöppuð,“ segir Sunna og bendir á að skreytingarnar, ljósadýrðin, tónlistin og mannlífið skapi saman þá einstöku upplifun sem margir sækja í ár eftir ár.
Fyrir margar fjölskyldur er heimsókn í Jólaþorpið orðin fastur liður í undirbúningi jólanna. Það má því segja að í Hafnarfirði sé aðventan örlítið lengri en annars staðar.
Já, sama snið og síðustu ár. Brikk verður með miðjuhúsið á torginu í ár eins og í fyrra. Húsið gegnir mikilvægu hlutverki í heildarásýnd þorpsins. Ljósaskreytingar svæðisins eru meðal annars festar við það. Húsið verður aðeins á Thorsplani yfir jólatímann.
Jólabærinn Hafnarfjörður
Jólaþorpið er hjartað í jólabænum Hafnarfirði en jólastemningin teygir sig langt út fyrir Thorsplan.
„Strandgatan, Hjartasvellið og ævintýraleg jólaljósin í Hellisgerði skapa saman einstaka upplifun fyrir gesti á öllum aldri,“ segir Sunna og hvetur gesti til að gefa sér góðan tíma til að njóta alls þess sem miðbærinn hefur upp á að bjóða.
„Ég held ekki að margir munu koma í fyrsta sinn, enda gestakomurnar 100 þúsund í fyrra. En þeim sem koma í fyrsta sinn myndi ég ráðleggja að gefa sér góðan tíma, rölta um Strandgötuna, skoða Jólaþorpið við Thorsplan og kíkja á Hjartasvellið,“ segir hún.
„Síðast en ekki síst mæli ég með göngutúr um Hellisgerði þar sem jólaljósin skapa sannkallaða ævintýrastemningu. Þar komast allir í jólaskap.“
Opnunartími Jólaþorpsins
Jólaþorpið opnar föstudaginn 13. nóvember og verður opið sem hér segir:
- Föstudaga: kl. 17–20
- Laugardaga: kl. 13–20
- Sunnudaga: kl. 13–18
- Þorláksmessu: kl. 13–21
Já, það styttist óðum í að ljósin kvikni, jólalögin hljómi og ilmurinn af jólakræsingum fylli miðbæinn.
Jólin eru á leiðinni í jólabæinn Hafnarfjörð!