Íslenskuátak í leikskólunum okkar skilar góðum árangri

Fréttir

Notkun á íslenskuappinu Bara tala jókst um 63% meðal starfsfólks leikskóla Hafnarfjarðar í sérstakri októberáskorun. Alls tóku starfsmenn frá 13 leikskólum þátt í átakinu. Markmiðið er að efla íslenskukunnáttu starfsfólks með annað móðurmál en íslensku.

Bara tala skilar árangri

Fimmtán starfsmenn leikskóla Hafnarfjarðar fengu í gær viðurkenningu eftir að hafa lokið Bara tala áskoruninni. Þrír þeirra sem stóðu sig best hlutu Hafnarfjarðarkortið í verðlaun.

„Þátttakendur þurftu að ná 930 stigum til að uppfylla skilyrði áskorunarinnar, en stigin fengust með því að leysa verkefni í snjallforritinu. Þátttakandinn sem náði lengst safnaði 13.567 stigum, sem jafngildir rúmlega 42 klukkustundum af íslenskuæfingum í appinu,“ segir segir Hildur Ýr Jónsdóttir, verkefnastjóri fjölmenningar hjá Hafnarfjarðarbæ.

„Það hefur verið frábært að sjá aukna þátttöku og íslenskunotkun í gegnum Bara tala-áskorunina. Íslenskan er oft sögð vera lykillinn að samfélaginu, en hún er líka brúin sem tengir okkur saman. Það sem hefur staðið upp úr er gleðin, samheldnin og sjálfstraustið sem verkefnið hefur skapað,“ segir Hildur og að gefa fólki tækifæri til að æfa sig og bæta íslenskuna sé gleðigjafi fyrir alla.

Þátttaka frá 13 leikskólum

Íslenskukennsla meðal starfsfólk í leikskólum Hafnarfjarðar er liður í því að hvetja það til að æfa sig í íslensku, efla öryggi í samskiptum og styrkja þátttöku þess í daglegu starfi leikskólanna. Áhersla var lögð á að gera íslenskunámið aðgengilegt og hvetjandi með aðstoð Bara tala appsins.

Starfsfólk frá 13 af 17 leikskólum Hafnarfjarðar tók þátt í áskoruninni og jókst notkun appsins um 63% á meðan á átakinu stóð. Alls tóku 61% notenda þátt í áskoruninni og 33% luku henni, eða 15 starfsmenn.

Góð íslenskukunnátta skiptir máli í daglegu starfi leikskólanna, bæði í samskiptum við börn, samstarfsfólk og foreldra. Með átakinu var starfsfólk hvatt til að efla færni sína í tungumálinu og öðlast aukið öryggi í starfi og daglegu lífi.

Til hamingju með árangurinn

Hafnarfjarðarbær óskar öllum þátttakendum til hamingju með árangurinn og þakkar þeim fyrir metnaðinn og áhugann. Ánægjulegt er að sjá hversu margir nýttu tækifærið til að efla íslenskukunnáttu sína og styrkja sig enn frekar í starfi.

 

Ábendingagátt