Ballet
Ballettkennsla hjá Listdansskóla Hafnarfjarðar hefur verið frá upphafi skólans og hafa margir nemendur frá okkur haldið áfram í framhaldsnám í dansi bæði hérlendis og erlendis. Við leggjum mikla áherslu á góða tæknigetu og líkamsburð, gott tóneyra og tjáningu. Nemendur 8 ára og eldri geta bætt við sig auka valtímum til að auka tæknigetu, styrk og sviðsframkomu.
Allir kennarar eru menntaðir í dansi og eru með mikla reynslu.
Aðrar íþróttir og tómstundir
Sundskóli – sundnámskeið
Ýmis sundnámskeið eða sundskóli í boði fyrir allt frá byrjendum til lengra komna.
Sumarnámskeið Klifið
Klifið býður upp á fjölbreytt og skemmtileg sumarnámskeið fyrir börn sem elska að skapa og tjá sig í gegnum myndlist, teikningu, leiklist, söng, dans og stafræna sköpun. Við leggjum áherslu á gleði, tjáningu og öruggt umhverfi þar sem hvert barn…
Heilsuefling Hress 65 ára og eldri
Hress býður upp á metnaðarfulla þjálfun og mælingar sem bætir lýðheilsu 65 ára til muna.
Styrkur 60+
Frábærar og fjölbreyttar styrktar- og þrekæfingar fyrir konur 60 ára og eldri.
Janus heilsuefling
Hafnarfjörður er stoltur samstarfsaðili Janusar heilsueflingu sem vinnur að bættri heilsu og lífsgæðum eldri borgara.