Skissur // Sigurjón Már Svanbergsson
Að skissa snýst ekki um nákvæmni heldur frekar að ná aðalatriðunum, formi og hreyfingu á blað. Til að ná þessu fram…
„Heilu hugarræðurnar urðu að grófum dráttum, hver stroka að höggi, ljúfleika eða sársauka, melankólík eða fjörleika, mýkt eða skarpleika, ást eða missi, kaldhæðni veraldarinnar eða skorti á visku.“
Visual Monologues er ferðalag teikninga sem ég byrjaði á árið 2020, til að tjá á sjónrænu formi hvernig hægt er að upplifa heiminn án þess að notast við rökræða uppsetningu orða.
Otilia Martin Gonzalez er spænsk listakona og hönnuður, fædd í Þýskalandi og búandi í Reykjavík. Með menntun í sjónrænum samskiptum og áhuga á táknfræði hefur því list hennar þróast af ómeðvituðum hug og sjónræns táknmáls hans. Einfaldir hlutir verða tákn tilfinninga, skaps og aðstæðna á sláandi hátt, sem opna fyrir leið að fjörugri sjálfsþekkingu og forvitnilegri könnun.
Skrímsli, tákn, sálfræði og galdrar eru vafin inn í verk hennar. Hún hefur haldið listasýningar á Spáni, Japan, Rúmeníu, Bretlandi, Finnlandi og Ítalíu og hefur unnið Vazquez Diaz verðlaunin á Spáni.
Otilia tekur vel á móti gestum og sérstök sýningaropnun verður laugardaginn 20. maí frá kl: 13:00-17:00.
Allir hjartanlega velkomnir!
Viðburðurinn er styrktur af Menningar og ferðamálanefnd Hafnarfjarðarbæjar og spænska sendiráðinu á Íslandi.