Skissur // Sigurjón Már Svanbergsson
Að skissa snýst ekki um nákvæmni heldur frekar að ná aðalatriðunum, formi og hreyfingu á blað. Til að ná þessu fram…
Í iðuhvolfi sólarinnar berst varmi til yfirborðsins með hreyfingu heits gass. Efnið rís, breiðist út og sekkur aftur niður. Þessi virkni mótar óstöðugt yfirborð þar sem björt svæði, dökkar rásir og samfelldir straumar verða til og leysast upp.
Sýningin Iðuhvolf dregur innblástur af þessu ferli. Victor G. Cilia byggir verkin upp með sveigðum línum, hringjum, dökkum opum og þéttum, flæðandi formum. Myndflöturinn virðist undir stöðugum þrýstingi, eins og formin séu að rísa fram úr dýpri lögum, rekast saman og breytast.
Í verkunum má greina svipi, verur, líkamsform og landslag, líkt og þær myndir sem birtast og hverfa þegar horft er inn í eld. Myndmálið stendur á mörkum hins hlutbundna og óhlutbundna.
Rauðbrúnir, gulir og dökkir litir færa hugan að hita, glóð, uppgufun og hreyfingu.
Svört holrúm brjóta upp form og leiða augað að smáatriðum og flæði sem mynda eina heild að lokum.
——-
Victor G. Cilia er íslenskur myndlistarmaður, fæddur í Reykjavík árið 1960. Cilia nam við Myndlista- og handíðaskóla Íslands á yngri árum og hefur starfað sjálfstætt við myndlist frá árinu 1992 og byggt upp samfelldan feril sem einkennist af persónulegum og auðþekkjanlegum myndheimi. Málverk hans sameina lífræn form, skrauthefðir, samhverfu, tæknileg tákn og nákvæma efnismeðferð í verkum þar sem reglufesta og ímyndunarafl haldast í spennu.
Sérstök sýningaropnun verður fimmtudaginn 15. október frá 16:00-19:00 og þér er boðið !
Aðrir opnunartímar:
Fös. 16. október 14:00 – 18:00
Lau. 17. október 13:00 – 17:00
Sun. 18. október 14:00 – 17:00
Mið. 21. október 14:00 – 18:00
Fim. 22. október 14:00 -18:00
Fös. 23. október 14:00 – 18:00
Lau. 24. október. 13:00 -17:00
Sun. 25. október 14:00-17:00
LG // Litla Gallerý er styrkt af Hafnarfjarðarbæ vegna viðburðarins
—————————–
In the convection zone of our Sun, energy is constantly transported to the surface by a mass movement of plasma, which forms a circular convection current, with the heated plasma ascending and the cooled plasma descending. The material rises, spreads and sinks back down. These conditions result in an unstable surface where bright areas, dark channels, and continuous currents are endlessly created and dissolved.
The exhibition Iðuhvolf draws inspiration from this process. Victor G. Cilia constructs his works by using curving lines, circles, dark cavities with tight, flowing shapes.
The surface of the picture appears to be under constant pressure, as the forms seem to emerge from deeper underlying layers, collide and shift.
In the works, facial expressions, creatures, anatomical forms and landscapes can be identified, similar to the images that appear and disappear when looking into a fire. The artist´s visual expression borders on the abstract and the realistic.
Reddish-brown, yellow, and dark colours bring to mind heat, embers, evaporation and movement.
Darker cavities penetrate the shapes, drawing attention to details and the overall flow, which finally results in a complete whole.
——-
Victor G. Cilia is an Icelandic artist, born in Reykjavík in 1960. He studied in the Icelandic Fine Arts and Crafts School in his younger years. He has been working independently in fine arts since 1992 and has built a continuous career characterized by a personal and recognizable artistic expression. His works combine organic forms, decorative traditions, symmetry and technical symbols with precise material treatment resulting in artworks where both discipline and imagination are held in a tensive balance.
There will be a special exhibition opening on Thursday, October 15th from 16:00-19:00 and you are welcome!
Other opening hours:
Fri. 16th Oct 14:00 – 18:00
Sat. 17th Oct 13:00 – 17:00
Sun. 18th Oct 14:00 – 17:00
Wed. 21st Oct 14:00 – 18:00
Thur. 22nd Oct 14:00 – 18:00
Fri. 23rd Oct 14:00 – 18:00
Sat. 24th Oct 13:00 – 17:00
Sun. 25th Oct 14:00 – 17:00
LG // Litla Gallerý is sponsored by town Hafnarfjordur for this event.