Með því að mæta sársaukanum í eigin skuggum og brjóta hlekki fortíðarinnar, fellur gríman sem við berum til að lifa af — og frelsið finnur leið sína út í ljósið.“

Heimferðin er ferðalag og rýni inn í skugga- sjálfið, með leitinni að okkar innra barni og hinu sanna sjálfi. Sýningin er innblásin af sálfræðikenningum Carls G. Jungs og hetjusögu (Hero’s Journey) Joseph Campbell og byggir á minni eigin persónulegu vegferð.

Vendipunktur varð hjá mér á fullorðinsaldri, eins og verður hjá mörgum; með vakningu- „aha-mómenti.“ Ég þurfti að horfast í augu við, mína eigin grímu sem er meðvirkni og átta mig þá á því að ég get ekki stjórnað líðan eða viðbrögðum annarra hvernig sem ég reyni, heldur einungis mínum eigin. Ég hafði skapað grímuna til að vernda litla barnið í mér og óttann minn við höfnun og þörfina fyrir að þóknast öðrum, ásamt undirliggjandi, skömm, reiði og sorg. Með sjálfskoðun, þar sem ég hef fléttað saman jóga, hugleiðslu, núvitund og samkennd í eigin garð, hef ég markvisst unnið með þessa gömlu skugga og áföll, sem ég mun gera áfram út lífið. Þannig hef ég öðlast smám saman meiri sjálfsþekkingu, sjálfstraust, kærleika, frið, sátt og von.

Á sýningunni er farið yfir þetta sársaukafulla en jafnframt frelsandi, sáttar- og umbreytingarferli með svarthvítri abstrakt- myndlist í formi ljósmyndaverka í nokkrum seríum. Súrrealískar sjálfsmyndir, ásamt öðrum portrettum, mæta náttúrunni þar sem mannlegt form og lífrænir strúktúrar renna saman og mörkin milli innra sálarlífs og ytra umhverfis verða óljós. Sýningin er óður til hugrekkisins sem þarf til að horfast í augu við eigið myrkur í stað þess að flýja það. Það er boð um að sleppa tökum á gömlum áföllum og stíga úr álögum, frjáls og heil, inn í nýjan dag.

Rannveig Björk Gylfadóttir, sem starfar undir listamannsnafninu Rannsy Bjork, er að vinna með samtímaljósmyndun í sinni listsköpun, en hún er með ástríðu fyrir því listformi og hefur sótt víða þekkingu því tengdu og tengt ljósmyndun síðastliðin ár. Hún lauk námi í Skapandi ljósmyndun 1, við Ljósmyndaskólann, vorið 2026. Hún er með meistarapróf, starfar sem sérfræðingur í krabbameinshjúkrun á Landspítala og er núvitundarkennari. Þessi bakgrunnur hefur mótað listræna nálgun hennar. Ljósmyndun Rannveigar er ígrunduð og hugleiðandi iðkun, einskonar flæðiástand og hreyfihugleiðsla. Hún vill að verk hennar endurspegli eigin tilfinningar og líðan og veki jafnframt persónuleg hughrif hjá áhorfandanum. Hún notar mest abstrakt, expressjóníska og súrrealíska nálgun og vinnur með ljós og skugga í landslagi og mannlegri tilvist í tengslum við andlega- og sálræna líðan. Hún notar meðal annars ICM (Intentional Camera Movement) og ME (Multiple Exposure) og vinnur bæði með ljósmyndun stafrænt og á filmu.

Rannveig hélt sína fyrstu einkasýningu, Hafið í dropanum, á Akranesi árið 2025. Árið 2026 fékk verkið hennar, Úr álögum (Unbound), Silver Winner verðlaun hjá BIFA (Budapest International Foto Awards) í flokknum: Fine Art-Special Effects. Sama ár var verkið hennar; Acceptance (Shadow Work) valið í samsýningunni Code Girl hjá Pictorial Foundation í Newburgh,
New York (30.5-26.7). Verk Rannveigar hafa birst í alþjóðlegum tímaritum tengdum Fine Art og samtímaljósmyndun.

Sérstök sýningaropnun verður fimmtudaginn 19. nóvember frá 18:00-21:00 og þér er boðið !

Aðrir opnunartímar:

Fös.           20. nóvember         14:00 – 20:00
Lau.           21. nóvember         13:00 – 18:00
Sun.           22. nóvember         13:00 – 18:00

Fim.           26. nóvember          15:00 – 18:00
Fös.           27. nóvember          14:00 – 19:00
Lau.           28. nóvember          13:00 -20:00
Sun.           29. nóvember           13:00-18:00

LG // Litla Gallerý er styrkt af Hafnarfjarðarbæ vegna viðburðarins

—————————–

“By meeting the pain within our own shadows and breaking the chains of the past, the mask we wear to survive begins to fall — and freedom finds its way into the light.”
„Homeward Bound“ is a journey of exploration into the shadow self, driven by the search for our inner child and true authentic self. Inspired by the psychological theories of Carl G. Jung and Joseph Campbell’s Hero’s Journey, the exhibition is rooted in my own personal path.

A turning point occurred in my adulthood—a realization, an „aha-moment,“ that many experience. I had to confront my own persona, a mask of codependency, and recognize that no matter how hard I try, I cannot control the feelings or reactions of others; I can only control my own. I had created this mask to protect the young child within me, shielding my fear of rejection, my need to please others, and the underlying feelings of shame, anger, and grief. Through self-reflection; intertwining yoga, meditation, mindfulness, and self-compassion, I have consciously worked through these old shadows and traumas, a process that will continue throughout my life. It is through this journey that I have gradually attained greater self-awareness, self-trust, compassion, peace, acceptance and hope.

The works translate this painful yet liberating process of reconciliation with self into abstract black-and-white imagery. Surreal self-portraits, more abstract portraiture, and nature come together, allowing human forms and organic structures to merge and blur the boundaries between the inner psyche and the external environment. This project is an ode to the courage it takes to face our own darkness rather than flee from it. It is an invitation to release the grip of old wounds and step, unbound, free and whole, into a new day.

Rannveig Björk Gylfadóttir, known as Rannsy Bjork, is an Icelandic photographer, working in the field of fine art contemporary photography. She has practiced photography for many years and completed Certification in Creative Photography, at “Ljósmyndaskólinn”, in Reykjavík in 2026. She holds an MS degree, is a specialist in oncology nursing, and a certified mindfulness instructor. These experiences have shaped her artistic approach, in which photography is a contemplative and meditative practice, a state of flow, where photography becomes a form of moving meditation. She aims to create work that reflects her own emotions while inviting viewers to connect with their own thoughts and feelings. She is drawn to abstract, expressionistic, and surrealistic approaches, working with light and shadow, both in landscape and within the human experience and inner emotional states. She works with both digital and film photography and uses techniques such as ICM (Intentional Camera Movement (ICM) and ME (Multiple Exposure).

Rannsy held her first solo exhibition, The Entire Ocean in a Drop, in Akranes, Iceland, in 2025. In 2026, she won the Silver Award at BIFA in the category; Fine Art-Special Effects, for her project; Unbound. The same year was her project: Acceptance (Shadow Work) selected for the group exhibition Code Girl at Pictorial Foundation in Newburgh, New York (30.5-26.7). Her work has been featured in international photography magazines.

There will be a special exhibition opening on Thursday, November 19th  from 18:00-21:00 and you are welcome!

Other opening hours:

Fri. 20 November — 14:00–20:00
Sat. 21 November — 13:00–18:00
Sun. 22 November — 13:00–18:00

Thu. 26 November — 15:00–18:00
Fri. 27 November — 14:00–19:00
Sat. 28 November — 13:00–20:00
Sun. 29 November — 13:00–18:00

LG // Litla Gallerý is sponsored by town Hafnarfjordur for this event.

Ábendingagátt