Að skissa snýst ekki um nákvæmni heldur frekar að ná aðalatriðunum, formi og hreyfingu á blað. Til að ná þessu fram þarf oft óttaleysi, hugrekki og jafnvel leyfa mér að gera mistök. Í skissunni gef ég undirmeðvitundinni lausan tauminn, það er einmitt það sem ég geri, ýti fullkomnunaráráttunni til hliðar og skissa.
Hús bæjarins virðast hversdagslegt viðfangsefni, en bera vitnisburð um tilveru og tíma. Þar rúmast þykk lög af minningum, safn augnablika, alls þess sem var og þess sem gæti orðið.
Húsin rísa upp á pappírnum í frjálslegum og flæðandi línum þar sem tússpennarnir á grófum bómullarpappír gefa verkunum sérstaka áferð. Hraðar ákveðnar strokur litanna sogast inn í yfirborðið og skilja eftir sig mjúkar línur.
Pennalínan er í senn bæði laus og markviss því við nánari skoðun kemur í ljós ríkuleg smáatriði sem gefa myndunum dýpt og kyrrláta nákvæmni. Sterk höfundareinkenni mín felast í spennu milli frelsis og forms, milli innsæis og athugunar.
Litirnir eru hófstilltir en lifandi, línurnar léttar en ákveðnar, og saman myndar þetta myndheim sem er bæði aðgengilegur og dýpri en hann virðist við fyrstu sýn.
————-
Sigurjón Már Svanbergsson (f.1974) er sjónrænn sögumaður, fæddur og uppalinn á Akureyri en býr nú í Hafnarfirði með vinnustofu í Íshúsi Hafnarfjarðar og tekur virkan þátt í skapandi starfi, meðal annars í tengslum við einhverfu- og skynseginsamfélagið. Hann hefur stundað listsköpun frá unga aldri. Lengst hefur hann fengist við ljósmyndun á svarthvítar filmur, þar sem auga hans fyrir ljósi og formi hefur þróast.
Á síðari árum hefur hann snúið sér í auknum mæli að pappírnum; unnið klippimyndir, lyftimyndir (pop-up) og dúkristur. Sigurjón hefur tekið þátt í fjölda samsýninga og hélt einkasýningu á kaffihúsinu Valkyrjunni sumarið 2024.
Sýningarstjórn: Elvar Gunnarsson
Sérstök sýningaropnun verður fimmtudaginn 1. október frá 18:00-21:00 og þér er boðið !
Aðrir opnunartímar:
Fös. 2. okt 13:00 – 18:00
Lau. 3. okt 13:00 – 17:00
Sun. 4. okt 14:00 – 17:00
Þri. 6. okt 13:00 – 18:00
Mið. 7. okt 13:00 – 18:00
Fim. 8. okt 13:00 -18:00
Fös. 9. okt 13:00 – 18:00
Lau. 10. okt 13:00 -17:00
Sun. 11. okt 14:00-17:00
LG // Litla Gallerý er styrkt af Hafnarfjarðarbæ vegna viðburðarins
—————————–
Sketching isn’t about precision, but rather about capturing the essentials, form and movement on paper. To achieve this often requires fearlessness, courage and even allowing myself to make mistakes. In sketching, I give my subconscious free rein; that’s exactly what I do, I push perfectionism aside and just sketch.
The town’s houses may seem like an everyday subject, but they bear witness to existence and time. They contain thick layers of memories, a collection of moments, of all that was and all that could be.
The houses rise up on the paper in free and flowing lines, where the ink pens on rough cotton paper give the works a unique texture. Swift, decisive strokes of colour are absorbed into the surface, leaving behind soft lines.
The pen line is at once both loose and deliberate, as closer inspection reveals a wealth of detail that gives the images depth and a quiet precision.
My strong authorial signature lies in the tension between freedom and form, between intuition and observation. The colours are subtle yet vibrant, the lines light yet decisive, and together they create a visual world that is both accessible and deeper than it first appears.
————-
Sigurjón Már Svanbergsson (b.1974) is a visual storyteller, born and raised in Akureyri but now living in Hafnarfjörður with a studio in Íshús Hafnarfjarðar, where he actively participates in creative work including in connection with the autistic and neurodivergent community. He has been creating art from a young age. For the longest time, he has worked with black and white film photography, where his eye for light and form has developed.
In recent years, he has increasingly turned to paper, creating collages, pop-up images, and linocuts. Sigurjón has participated in numerous group exhibitions and held a solo exhibition at the Valkyrjan café in the summer of 2024.
LG // Litla Gallerý is sponsored by town Hafnarfjordur for the event.
Curator: Elvar Gunnarsson
There will be a special exhibition opening on Thursday, October 1st from 18:00-21:00 and you are welcome!
Other opening hours:
Fri. 2nd Oct 13:00 – 18:00
Sat. 3rd Oct 13:00 – 17:00
Sun. 4th Oct 14:00 – 17:00
Tue. 6th Oct 13:00 – 18:00
Wed. 7th Oct 13:00 – 18:00
Thur. 8th Oct 13:00 – 18:00
Fri. 9th Oct 13:00 – 18:00
Sat. 10th Oct 13:00 – 17:00
Sun. 11th Oct 14:00 – 17:00
LG // Litla Gallerý is sponsored by town Hafnarfjordur for this event.