Sunnudaginn 25. október kl. 14 mun Ásdís Spanó, sýningarstjóri, leiða gesti um sýninguna Bjarmaband og ræða líf og list Frosta Fjalars, feril hans og vinnuaðferðir, auk þess að segja frá tilurð sýningarinnar og þeirri vinnu sem lá að baki henni.

Á sýningunni getur að líta úrval verka eftir Frosta, sem um áratugaskeið vann að list sinni í einrúmi. Frosti, sem áður hét Jakob Jónsson, átti að baki langan feril sem spannaði meira en hálfa öld. Eftir virkt sýningartímabil á áttunda og níunda áratug síðustu aldar dró hann sig hins vegar í hlé og tók hvorki þátt í sýningum né var virkur á opinberum vettvangi eða innan myndlistarsamfélagsins. Á löngum ferli mótaðist myndmál hans af næmu formskyni, agaðri myndbyggingu og sterkri tilfinningu fyrir litum.

Frosti Fjalar (1936-2026) nam myndlist í Kaupmannahöfn, fyrst við Ny Carlsberg Glyptotek og síðar við Det Kongelige Danske Kunstakademi, auk þess sem hann lauk prófi í byggingarverkfræði frá KTH í Stokkhólmi. Eftir síðustu sýningu sína árið 1991 hvarf hann af sjónarsviðinu en hélt áfram að skapa af einstakri einurð. Eftir hann liggja hátt í sex þúsund vatnslitaverk og um átta hundruð málverk.

Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.

Ábendingagátt