Vetrarfrí er í grunnskólum og Tónlistarskóla Hafnarfjarðar mánudaginn 26. október og þriðjudaginn 27. október. Af því tilefni býður Heilsubærinn Hafnarfjörður börnum og fjölskyldum þeirra að taka þátt í skemmtilegri dagskrá í vetrarfríinu og finna góðar hugmyndir að skemmtilegri og fjölbreyttri afþreyingu um allan Hafnarfjörð fyrir alla fjölskylduna.

Mánudagur 26. október

  • Byggðasafn Hafnarfjarðar – Fjölskyldusmiðja, klemmubrúður og handboltatreyjur! Frá kl. 11 – 13.  Pakkhúsið opið frá kl. 11 – 15.
  • Hafnarborg – Tilraunir með gelprent – kynnumst gelprenti og möguleikum þess til listsköpunar! Frá kl. 13 – 15. Hafnarborg opin frá kl. 12 – 17.
  • Bókasafn Hafnarfjarðar – Opni leikskólinn frá kl. 12- 14, Listasmiðja frá kl. 16 – 17 og hægt verður að fara í fjársjóðsleit á safninu allan daginn, opið frá kl. 9 – 19.

Þriðjudagur 27. október

  • Byggðasafn Hafnarfjarðar – Fjölskyldusmiðja, klemmubrúður og handboltatreyjur! Frá kl. 11 – 13. Pakkhúsið opið frá kl. 11 – 15.
  • Hafnarborg – Smáheimar, fjöltyngd smiðja í samstarfi við GETU. Skapaðu þína eigin smáheima úr pappír! Frá kl. 13 – 15. Hafnarborg opin frá kl. 12 – 17.
  • Bókasafn Hafnarfjarðar – Spilakynning kl. 15:30, sauma- og hönnunarsmiðja kl. 17 og hægt verður að fara í fjársjóðsleit á safninu allan daginn, opið frá kl. 9 – 19.

Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu. Á vef Hafnarfjarðarbæjar er hægt að nálgast fullt af hugmyndum af áhugaverðum stöðum að heimsækja, leik- og boltavellir eru víða og fjölmargar göngu- og hjólaleiðir liggja um Hafnarfjörð.

Heilsubærinn Hafnarfjörður óskar íbúum og vinum Hafnarfjarðar gleðilegs vetrarfrís! 

Ábendingagátt