Graskeraskurður í Hellisgerði!

Helgina 24.–25. október bjóðum við ykkur að koma í graskeraskurð og njóta notalegrar hrekkjavökustemningar í Hellisgerði, í samstarfi við Costco og Blóðappelsín frá Ölgerðinni!


Grasker á aðeins 990 kr.

Skurðarhnífar á staðnum.

Taktu mynd af graskerinu þínu og merktu okkur á Instagram @helliskaffi.

Keppni í graskeraskurði!
Skerðu út þitt eigið grasker og taktu þátt í keppninni um gjafabréf frá Helliskaffi:

1. sæti – 20.000 kr.

2. sæti – 15.000 kr.

3. sæti – 10.000 kr.

Opnunartími Helliskaffis og graskeraskurðar:

Laugardagur: kl. 11:00–22:00

Sunnudagur: kl. 11:00–18:00

Helliskaffi verður opið til kl. 23:00 á laugardeginum, svo það er tilvalið að koma við í mat og drykk og njóta kvöldstemningarinnar.
Taktu fjölskylduna með, finndu þitt fullkomna grasker og komdu þér í hrekkjavökugírinn!


Verið öll velkomin í HRELLISGERÐI!
