Fjölskyldusmiðja í Pakkhúsinu

Mánudaginn 26. og þriðjudaginn 27. október frá kl. 11–13 bjóðum við börnum og fjölskyldum þeirra að taka þátt í tveimur smiðjum:

🧵 Klemmubrúður: Í gamla daga bjó fólk til sitt eigið dót. Við mælum með að skoða leikfangasýninguna í risinu og búa síðan til þína eigin klemmubrúðu til að taka með heim.

🤾 Handboltatreyjur á klemmu: Eftir að hafa skoðað sýninguna Handboltabærinn Hafnarfjörður getur þú hannað þína eigin treyju á pappír, framhlið og bakhlið í þínum litum og með uppáhalds númerinu þínu.

Hentar best fyrir 6–12 ára og fjölskyldur þeirra. Aðgangur er ókeypis. Verið öll velkomin!

Pakkhúsið er hluti af Byggðasafni Hafnarfjarðar og verður opið 26.-27. október frá kl. 11–15.

 

english

Family workshop at Pakkhúsið

On Monday 26 and Tuesday 27 October, from 11am to 1pm children with families are invited to participate in two workshops:

🧵 Clothespin dolls: In the old days, people made their own toys. We recommend visiting our toy exhibition in the attic, then try making your own clothespin doll to take home.

🤾 Handball jerseys on clothespins: After looking at the exhibition titled Hafnarfjörður: The Handball Town design your own paper jersey, front and back, in your own colours with your favourite number.

Best suited for ages 6–12 and their families. Free admission. Everyone is welcome!

Pakkhúsið is part of Hafnarfjörður Museum (Byggðasafn Hafnarfjarðar) and will be open 26-27 October from 11:00 to 15:00.

Ábendingagátt