10. bekkur Víðistaðaskóla hefur sett upp söngleiki frá stofnun skólans. Með hverju árinu hafa söngleikirnir orðið veglegri og metnaðarfyllri og í ár setja nemendur upp söngleikinn Mary Poppins í íslenskri þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar.

Söngleikurinn Mary Poppins fjallar um töfrandi barnfóstruna Mary Poppins og ævintýrin sem hún lendir í þegar hún vinnur hjá Banks fjölskyldunni í Lundúnaborg árið 1910.

Leikstjórn er í höndum Níels Thibaud Girerd en tónlistarstjóri er Jóhanna Ómarsdóttir, búningahönnuður Kristín Högna Garðarsdóttir og danshöfundar eru Iðunn Björk Kristjánsdóttir, María Ísól Tinnudóttir og Mirjam Yrsa Friðleifsdóttir.

Sviðsmynd, búningar, förðun, ljós og hljóð er allt í höndum krakkanna og foreldra þeirra.
Verkefnið er árlegt samstarfsverkefni skólans, félagsmiðstöðvarinnar Hraunsins og foreldra og koma allir nemendur í 10. bekk á einhvern hátt að verkefninu. Metnaðurinn sem lagður er í þetta verkefni er gríðarlegur og gaman að fylgjast með íþróttahúsinu í Víðistaðaskóla breytast í töfrandi leikhús.

Frumsýning verður 16. febrúar en aðeins verða fimm sýningar.

Miðasala er á tix.is: Tix.is – Mary Poppins

Ábendingagátt