Skissur // Sigurjón Már Svanbergsson
Að skissa snýst ekki um nákvæmni heldur frekar að ná aðalatriðunum, formi og hreyfingu á blað. Til að ná þessu fram…
Sýningin AKADEMIA opnar í kjölfar vormessunnar í Krýsuvíkurkirkju, 2. júní n.k. Messað verður kl. 14:00. Sóknarprestur Hafnarfjarðarkirkju, séra Jónína Ólafsdóttir, þjónar fyrir altari, séra Sighvatur Karlsson predikar. Um messusöng sjá organisti kirkjunnar, Kári Þormar ásamt forsöngvaranum Söru Gríms. Á eftir messu um kl. 15:00 verður að vanda boðið til messukaffis í Sveinshúsi og þá verður sýningin AKADEMIA opnuð. Þeir sem ekki fara í messu eru velkomnir í Sveinshús upp úr klukkan þrjú.
Aðra daga er opnunartíminn í Sveinshúsi fyrsti sunnudagur í mánuði á sumrin kl. 13:00 – 17:30. Hefðbundið er að boðið er upp á leiðsögn og kaffiveitingar.
Að auki geta hópar komið á öðrum tíma skv. samkomulagi við aðstandendur safnsins.