Umsækjendur um starf skólastjóra
Hafnarfjarðarbær auglýsti starf skólastjóra Víðistaðaskóla laust til umsóknar í byrjun júní. Umsóknarfrestur rann út 21. júní.
Umsækjendur um starf skólastjóra
Hafnarfjarðarbær auglýsti starf skólastjóra Víðistaðaskóla laust til umsóknar í byrjun júní. Umsóknarfrestur rann út 21. júní.
Víðistaðaskóli er teymiskennsluskóli með fjölbreytta kennsluhætti. Í skólanum eru 2 bekkjardeildir á yngsta stigi, 3 bekkjardeildir á miðstigi og 3–4 bekkjardeildir á elsta stigi. Í upphafi skólaársins 2023–24 voru um 520 nemendur í skólanum.
Leiðarljós Víðistaðaskóla eru: Ábyrgð – Virðing – Vinátta og er skólastarfið í anda þeirra. Í Víðistaðaskóla er lögð áhersla á að undirbúa nemendur undir framtíðina á lýðræðislegan hátt. Skólinn vinnur í anda lýðræðis og eru haldin sérstök þing þar sem ýmis mál eru rædd, þessi vinna er einnig tengd Barnasáttmálanum.
Lista yfir umsækjendur má sjá hér fyrir neðan:
- Ari Jóhann Sigurðsson, sérkennari
- Arnar Ævarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri
- Arngunnur Hafstað Sigurþórsdóttir, aðstoðarskólastjóri
- Dagný Kristinsdóttir, deildarstjóri
- Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir, aðstoðarskólastjóri
- Guðmundur Björgvin Sigurbjörnsson, deildarstjóri
- Soffía Ámundadóttir, deildarstjóri