Skissur // Sigurjón Már Svanbergsson
Að skissa snýst ekki um nákvæmni heldur frekar að ná aðalatriðunum, formi og hreyfingu á blað. Til að ná þessu fram…
Sunnudaginn 10. nóvember kl. 15 stíga yfir 100 börn og ungmenni á stokk í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og flytja fjölbreytta tónlist frá barokktímanum á fjölskyldutónleikum í félagi við Kammerhópinn ReykjavíkBarokk.
Tónleikarnir eru sannkallað ferðalag um hljóðheim barokksins þar sem áheyrendur fá að heyra í mörgum spennandi hljóðfærum, 75 barna kór, einleikurum, einsöngvurum og samspilshópum. Tónleikarnir hefjast á Torginu í Tónlistarskólanum, færast svo yfir í Hásali og enda í Hafnarfjarðarkirkju.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Ekki missa af einstökum menningarviðburði!
Fram koma:
Kammerhópurinn ReykjavíkBarokk
Nemendur úr Tónlistarskóla Hafnarfjarðar
Kór Setbergsskóla
Barnakór Hafnarfjarðarkirkju
Drengjakór Reykjavíkur
Orgelkrakkar Tónskóla Þjóðkirkjunnar
Tónleikarnir eru unnir í samstarfi við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og Hafnarfjarðarkirkju. Verkefnið Krakkabarokk á ferð og flugi er styrkt af Barnamenningarsjóði.