Benedikt Búálfur lifnar við í Hraunvallaskóla
Nemendur í unglingadeild Hraunvallaskóla hafa unnið hörðum höndum í allan vetur að uppsetningu á söngleiknum Benedikt Búálfur. Nú er komið að uppskerunni. Þrjár sýningar verða dagana 7. og 8. mars. Miðasala á skrifstofu skólans og í Mosanum. Þetta er frábært leikrit sem krakkarnir elska.
Sýnt er:
- Föstudaginn 7. mars kl. 18.30
- Laugardaginn 8. mars kl. 11
- Laugardaginn 8. mars kl. 14
Miðasala er á skrifstofu skólans og í félagsmiðstöðinni Mosanum.
Já, njótum með þeim og mætum!