Litla Gallerý –
Ég heiti Emil Jóhann Sigurðsson, en listamannanafnið mitt er Emil J. Sig. Ég byrjaði minn listamannaferil á Spáni 2017. Ég…
Á undanförnum árum hefur 10. bekkur í Setbergsskóla staðið fyrir glæsilegum uppfærslum á söngleikjum, sem hafa verið hápunktar skólaársins. Í ár verður engin undantekning, því nú verður settur upp hinn stórkemmtilegi söngleikur SCHOOL OF ROCK – Rokkskólinn, byggður á samnefndri kvikmynd sem sló í gegn á sínum tíma.
Það má búast við mikilli skemmtun, frábærri lifandi tónlist og gleði fyrir alla fjölskylduna í Rokkskólanum! Þetta er tími sem enginn vill fá fjarvist í.
Frumsýning verður fimmtudaginn 27. mars klukkan 18:30. Aðrar sýningar eru föstudaginn 28. mars klukkan 16:00 og 19:30 og laugardaginn 29. mars klukkan 14:00 og 17:00
Fylgist með okkur á Instagram (@schoolofrock2025) og TikTok (@schoolofrock2025)!
Lengi lifi rokkið!