Alþjóðadagur leiks er 11. júní – Leikum við börnin
Alþjóðadagur leiks er 11. júní. Dagurinn hefur verið haldinn frá árinu 2024. Já, stökkvum öll út að leika.
Alþjóðadagur leiks – Leikum við börnin
Þann 11. júní er alþjóðadagur leiks. Þá er gaman að fara út að leika, biðja börnin að vera memm. Við hvetjum því ykkur foreldra til að búa til pláss þennan dag til að leika við börnin sín.
Dagurinn var haldinn í fyrsta skipti árið 2024 og er honum ætlað að vekja athygli á rétti barna til leiks og því mikilvæga hlutverki sem leikur spilar í andlegum og líkamlegum þroska og vellíðan barna.
Þema Alþjóðlega leikdagsins í ár er: „Verndum leik, verndum bernskuna.“ Þemað er áminning fyrir okkur öll, stjórnvöld, fyrirtæki, skóla og fjölskyldur – um að hamingjusöm og heilbrigð bernska byggist á leik.
Leikur er frábær leið til þess að styrkja samband foreldra og barna, leikurinn er líklegur til þess að skapa traust og styðja við vellíðan barna.
Í 31. grein Barnasáttmálans segir að:
- Aðildarríki viðurkenna rétt barns til hvíldar og tómstunda, til að stunda leiki og skemmtanir sem hæfa aldri þess, og til frjálsrar þátttöku í menningarlífi og listum.
- Aðildarríki skulu virða og efla rétt barns til að taka fullan þátt í menningar- og listalífi, og skulu stuðla að því að viðeigandi og jöfn tækifæri séu veitt til að stunda menningarlíf, listir og tómstundaiðju.
Gerum okkur glaðan dag og búum til pláss til að leika við börnin ❤️ Já, Hafnafjarðabær hvetur foreldra til að gera sér glaðan dag, búa til pláss og leika við börnin.