Flokkur: Fréttir

Bakverðir virkja krafta sína á öðrum vettvangi

Hjá Hafnarfjarðarbær hefur verið lagt kapp á, frá upphafi Covid19, að tryggja að ekki komi til skerðingar á samfélagslega mikilvægri þjónustu og þjónustu sem þarf að haldast órofin á öllum stigum almannavarna. Guðrún Þorsteinsdóttir, mannauðsstjóri Hafnarfjarðarbæjar segir að það hafi að mestu tekist með útsjónarsemi og hugmyndaauðgi stjórnenda og starfsfólks á hverri starfsstöð fyrir sig […]

Hugmyndir um nútímalegt bókasafn í Firði

Horft til framtíðar með hugmyndum um nútímalegt bókasafn Bæjarstjórn Hafnarfjarðar tók fyrir á fundi sínum í dag hugmyndir um að flytja Bókasafn Hafnarfjarðar úr núverandi húsnæði að Strandgötu 1 í nýtt húsnæði að Strandgötu 26-30. Vilji er fyrir því að gera skuldbindandi samkomulag milli 220 Fjarðar og Hafnarfjarðarbæjar sem byggir á hugmyndum ,,220 Fjarðar“ að […]

Staðan á mörgum og ólíkum framkvæmdum í bænum

Vaxandi sveitarfélagi eins og Hafnarfirði fylgir fjöldi framkvæmda af mismunandi stærðargráðum, víða um bæjarlandið. Covid hefur sem betur fer ekki tafið framkvæmdir neitt að ráði og allt kapp lagt á að halda framkvæmdum á áætlun og jafnvel hefur verið gefið í ef eitthvað er.  Bæjarblaðið Hafnfirðingur kynnti sér stöðu helstu framkvæmda innan sveitarfélagsins hjá Helgu […]

Nýr skólasöngur á 30. starfsári Hvaleyrarskóla

Kurteisi | Ábyrgð | Samvinna – það er Hvaleyrarskóli  Síðasta skólaár var 30. starfsár Hvaleyrarskóla. Síðasta vor stóð til að hafa þemadaga í byrjun apríl til að fagna þessum stóra áfanga. Vegna aðstæðna í samfélaginu var veislu slegið á frest og ákveðið að tengja afmælið við lok vinavikunnar sem haldin var í skólanum í síðustu […]

Hringinn í kringum landið í nóvember

Starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar hefur sett sér það markmið að ganga hringinn í kringum landið í nóvember. Haldið er utan um þátttöku í verkefninu á innri samskiptamiðli starfsfólks en starfsfólk gengur sjálft eða í litlum hópum og sendir inn upplýsingar um gengna kílómetra. Daglega er vegalengdin tekin saman til að sjá hve hópurinn er kominn langt áleiðis. […]

Snjallbærinn Hafnarfjörður verður til

„Smart City“ eða snjallborg er hugtak sem hefur verið áberandi í umræðunni undanfarin misseri og þó Hafnarfjörður sé ekki borg þá er bærinn að taka ákveðin skref í að gerast snjall. Verkefnin ganga út að nýta upplýsingatæknina til að bæta gæði og skilvirkni þjónustunnar og koma á enn betri samskiptum við íbúa.  Snjallhópurinn – starfsfólk […]

Ærslabelgir lagðir í vetrardvalann

Frá og með deginum í dag munu ærslabelgir á Víðistaðatúni og á Óla Run túni vera loftlausir og þannig lagðir í vetrardvalann. Til stóð að halda lofti í belgnum allt fram að frostatíð en í ljósi hertra sóttvarnaraðgerða, öryggisins vegna og þess að skemmd er komin í belg á Víðistaðatúni þá hefur verið ákveðið að […]

Skoðanakönnun um vef Bókasafns Hafnarfjarðar

Hafnarfjarðarbær vinnur þessa dagana að nýjum vef fyrir Bókasafn Hafnarfjarðar. Í laufléttri og stuttri könnun sem íbúar og vinir Hafnarfjarðar eru hvattir til að taka þátt í er eingöngu spurt um atriði sem snerta vefinn:  www.bokasafnhafnarfjardar.is og snúa m.a. að fjölda heimsókna á vef,  hvernig vefurinn þjónar þörfum notenda, í hvaða tilgangi vefurinn er heimsóttur og hvaða […]

Hádegistónleikar í beinni frá Hafnarborg í dag kl. 12

Þriðjudaginn 3. nóvember kl. 12:00 mun Hanna Þóra Guðbrandsdóttir, sópran, koma fram á hádegistónleikum ásamt Antoníu Hevesi, píanóleikara. Á tónleikunum sem bera yfirskriftina Dísætir tónar verða fluttar aríur úr óperunum La Bohème og Tosca eftir G. Puccini og Adriana Lecouveur eftir F. Cilea. Vegna aðstæðna í samfélaginu verða tónleikarnir haldnir fyrir tómum sal. Vegna gildandi […]

Samkomutakmarkanir og börn – þrengjum tengslanetið

Skólar og íþróttafélög skipuleggja sitt fyrirkomulag til að fara eftir fyrirmælum yfirvalda um takmarkanir á skólastarfi og samkomum, þ.m.t. fjöldatakmörkunum, rýmum og grímunotkun. Það er mikilvægt að forráðamenn barna dragi á sama tíma úr fjölda einstaklinga í tengslaneti barna sinna utan skólatíma til að vinna ekki gegn þessum ráðstöfunum.      Gott er að hafa […]