Flokkur: Fréttir
Jólahugvekja bæjarstjóra
Uppgjör, þakklæti og eftirvænting Á þessum tíma árs vakna upp og bærast í brjósti miklar tilfinningar. Tilhlökkun yfir því sem koma skal, þakklæti fyrir það liðna og ást í garð fjölskyldu og vina. Enn eitt árið er við það að kveðja. Það hefur lagt inn í lífsbankann ákveðna reynslu, þroska og upplifun á því sem […]
Viljum gera þjónustuna snjallari
Sigurjón Ólafsson tók við nýju starfi sem sviðsstjóri þjónustu og þróunar hjá Hafnarfjarðarbæ í haustbyrjun. Sigurjón hefur verið þátttakandi í stafrænni vegferð margra stofnana og fyrirtækja og hefur stýrt stórum verkefnum, aðstoðað við að breyta stafrænni ásýnd og við að innleiða ný vinnubrögð og hugsunarhátt. Hans teymi hefur látið til sín taka þessa fyrstu mánuði, […]
Fimmtán ára leikskóli í alþjóðlegu samstarfi
Leikskólinn Stekkjarás fagnaði fimmtán ára afmæli sínu 8. september sl. „Í þessi fimmtán ár höfum við verið í stöðugri þróun og aldrei þurft að hafa áhyggjur af stöðnun,“ segir Alda Agnes Sveinsdóttir leikskólastjóri. Segir hún nýliðið haust í Stekkjarási hafa verið fjörugt sem fyrr og skólasamfélagið tekið þátt í og sett af stað margvísleg verkefni. […]
Endurskinsmerki að gjöf á dimmustu dögum ársins
Félag eldri borgara í Hafnarfirði fékk fyrir helgi, þegar stystu og þar með dimmustu dagar ársins standa yfir, endurskinsmerki að gjöf frá Heilsubænum Hafnarfirði. Sigurður Björgvinsson varaformaður Félags eldri borgara í Hafnarfirði tók á móti gjöfinni. Hér með honum á myndinni að ofan eru þau Linda Hildur Leifsdóttir verkefnastjóri Félags eldri borgara í Hraunseli og […]
Með puttana á Skólapúlsinum
Aukin ánægja í grunnskólastarfi bæjarinsÚrbótaverkefni skólanna eru að skila sýnilegum og jákvæðum árangri Niðurstöður Skólapúlsins voru kynntar á fundi fræðsluráðs Hafnarfjarðar í vikunni og þykja þær sérstaklega ánægjulegar fyrir hafnfirskt grunnskólasamfélag. Tilgangur Skólapúlsins og Skólavogar, sérstakrar skýrslu sem Hafnarfjarðarbær gefur út með niðurstöðunum, er að átta sig á stöðu mála og gefa einstaka skólum, og […]
Endurskinsmerki aðgengileg fyrir alla áhugasama
Endurskinsmerki frá Heilsubænum Hafnarfirði eru nú aðgengileg í þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar og í Bókasafni Hafnarfjarðar fyrir áhugasama á öllum aldri. Endurskinsmerkin voru framleidd og afhent sem gjöf til allra sex ára barna haustið 2019 þegar grunnskólaganga þeirra hófst. Eftirspurn og áhugi varð til þess að ákveðið var að framleiða fleiri endurskinsmerki sem nú eru öllum aðgengileg. […]
Jólasund er góð samverustund
Sundlaugar Hafnarfjarðarbæjar eru þrjár og hafa þær allar sín sérkenni. Upplýsingar um allar sundlaugarnar og staðsetningu þeirra er að finna HÉR Opnunartími sundlauganna yfir jólahátíðina 2019 er sem hér segir: Ásvallalaug Suðurbæjarlaug Sundhöll Hafnarfjarðar 23. desember 06:30 – 17:00 06:30 – 17:00 06:30-17:00 24. desember 06:30 – 13:00 06:30 – 13:00 06:30 – 11:00 […]
Árleg jólagjöf Áslandsskóla til Mæðrastyrksnefndar
Undanfarin þrettán ár hefur skólasamfélagið í Áslandsskóla styrkt Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar með framlögum fyrir jólin. Ásta Eyjólfsdóttir formaður nefndarinnar kom á jólaskemmtun í Áslandsskóla á dag, föstudaginn 20. desember, og tók við framlagi úr hendi Leifs S. Garðarssonar skólastjóra. Í ár söfnuðust 239.125.- krónur sem runnu að sjálfsögðu óskertar til nefndarinnar. Á þrettán árum hefur skólasamfélagið […]
Bókagjöf til skólabókasafna – lestur er lífsins leikur
Bókasöfn leik- og grunnskóla Hafnarfjarðar fengu nú fyrir jólin fjármagn að gjöf frá sínu sveitarfélagi með það fyrir augum að þau geti bætt við bókakost sinn og bætt við nýjum og spennandi bókum úr jólabókaflóði jólanna 2019. Það er öllum bókasöfnum mikilvægt að vera í takt við tímann og það sem á sér stað í […]