Kynningarfundur skipulagslýsingar vegna breytingar á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013–2025 Reitur ÍB2, Hraun-vestur (Gjótur) verður haldinn á Norðurhellu 2 fimmtudaginn 19. mars 2020 frá kl. 17 – 18. Í ljósi aðstæðna er fundi streymt beint á vef og Facebooksíðu Hafnarfjarðarbæjar og eru fundargestir hvattir til að nýta sér streymið frekar en að mæta á staðinn. Bein útsending […]
Flokkur: Fréttir
Styrkir vegna hljóðvistar 2020
Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna viðgerða og framkvæmda á gluggum húsa við umferðarþungar götur. Frekari upplýsingar fást í þjónustuveri Hafnarfjarðar, Strandgötu 6 í síma 585-5500 og á vef bæjarsins. Hér má finna upplýsingar um aðgerðaáætlun gegn hávaða í Hafnarfirði á árunum 2018-2023. Sótt er um á MÍNUM SÍÐUM Umsóknarfrestur er til 1. maí […]
Bæjarstjórnarfundur 18. mars
Boðað hefur verið til bæjarstjórnarfundar miðvikudaginn 18. mars. Formlegur fundur hefst kl. 14:00 í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg, Strandgötu 34. Hér er hægt að nálgast dagskrá fundar. Hér er hægt að horfa á fundinn í beinni útsendingu
Sundlaugar í Hafnarfirði verða opnar í samkomubanni
Sundlaugar í Hafnarfirði verða opnar í samkomubanni. Gufuböð verða lokuð sem og gufubaðsklefar en rennibrautir og pottar verða opnir og er þeim tilmælum beint til gesta að virða tveggja metra regluna sem nú er í gildi. Farið verður að tilmælum almannavarna um fjöldatakmarkanir en fækka þarf skápum sem eru í notkun vegna fjarlægðarreglna. Þá verður […]
Sameiginleg yfirlýsing vegna áhrifa COVID-19 á skólastarf
Íslenskt samfélag tekst nú á við miklar áskoranir vegna heimsfaraldurs COVID-19. Gripið hefur verið til aðgerða sem eiga sér engin fordæmi á lýðveldistímum sem meðal annars snúa að skólastarfi í landinu. Í framhaldi af fundi sóttvarnarlæknis, fulltrúa almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélags, Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, Reykjavíkurborgar og Kennarasambands Íslands, laugardaginn 14. […]
Um starfsemi grunn- og leikskóla, íþrótta- og menningarmála
Tilkynning frá sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu um starfsemi grunn- og leikskóla, íþrótta- og menningarmála á tímum samkomubanns. Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa síðan á föstudag unnið að útfærslu á skólastarfi, starfsemi íþróttamiðstöðva, sundlauga og menningarhúsa næstu vikna í samræmi við tilmæli sóttvarnarlæknis og stjórnvalda. Í ljósi þess að skólastarf verður með mismunandi hætti milli sveitarfélaga og innan […]
Starfsstöðvar hafa virkjað sínar viðbragðsáætlanir
Hafnarfjarðarbær hefur hækkað viðbúnaðarstig sveitarfélagsins til samræmis við neyðarstig almannavarna vegna smita á COVID-19 veirunni. Þrátt fyrir að ríkislögreglustjóri í samráði við sóttvarnalækni hafi fært stig almannavarna af hættustigi yfir á neyðarstig þá miðast viðbragðsáætlanir sveitarfélagsins við að halda úti skólastarfi og menningarstarfi með skerðingu og tryggja þá starfsemi og þjónustu sem þarf að haldast […]
Hafnarborg hlýtur Íslensku tónlistarverðlaunin
Menningarmiðstöðin Hafnarborg hlaut í vikunni Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir viðburð ársins (einstaka tónleika), í flokknum sígildri og samtímatónlist, fyrir opnunartónleika sýningarinnar Hljóðana, sem var hluti af dagskrá Myrkra músíkdaga. Til hamingju Hafnarborg og listafólk á bak við þessa einstöku tónleika og sýningu! Hafnarborg vill þakka slagverksleikaranum Jennifer Torrence, fyrir ógleymanlega túlkun á verkum þeirra Toms Johnson og […]
Ný upplýsingasíða fyrir Covid-19
Nýr vefur með góðum ráðum og upplýsingum um COVID-19 sem vísar í upplýsingar embættis landlæknis og annarra traustra aðila er kominn í loftið. Vefslóðin er www.covid.is. Það er Embætti landlæknis og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra sem standa að síðunni. Efni er uppfært reglulega á síðunni.
Breyting á umferð – aðrein að Ástorgi lokuð
Verktaki hefur lokað aðrein að Ástorgi frá Reykjanesbraut, suðvestan Strandgötubrúar, vegna vegaframkvæmda. Hjáleið er um Krýsuvíkurveg og Ásbraut annars vegar og Kaldárselsveg og Ásbraut hins vegar. Þessi lokun mun standa yfir til 31. maí 2020.