Hafnarfjarðarbær hefur hækkað viðbúnaðarstig sveitarfélagsins til samræmis við neyðarstig almannavarna vegna smita á COVID-19 veirunni. Þrátt fyrir að ríkislögreglustjóri í samráði við sóttvarnalækni hafi fært stig almannavarna af hættustigi yfir á neyðarstig þá miðast viðbragðsáætlanir sveitarfélagsins við að halda úti skólastarfi og menningarstarfi með skerðingu og tryggja þá starfsemi og þjónustu sem þarf að haldast […]
Flokkur: Fréttir
Hafnarborg hlýtur Íslensku tónlistarverðlaunin
Menningarmiðstöðin Hafnarborg hlaut í vikunni Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir viðburð ársins (einstaka tónleika), í flokknum sígildri og samtímatónlist, fyrir opnunartónleika sýningarinnar Hljóðana, sem var hluti af dagskrá Myrkra músíkdaga. Til hamingju Hafnarborg og listafólk á bak við þessa einstöku tónleika og sýningu! Hafnarborg vill þakka slagverksleikaranum Jennifer Torrence, fyrir ógleymanlega túlkun á verkum þeirra Toms Johnson og […]
Ný upplýsingasíða fyrir Covid-19
Nýr vefur með góðum ráðum og upplýsingum um COVID-19 sem vísar í upplýsingar embættis landlæknis og annarra traustra aðila er kominn í loftið. Vefslóðin er www.covid.is. Það er Embætti landlæknis og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra sem standa að síðunni. Efni er uppfært reglulega á síðunni.
Breyting á umferð – aðrein að Ástorgi lokuð
Verktaki hefur lokað aðrein að Ástorgi frá Reykjanesbraut, suðvestan Strandgötubrúar, vegna vegaframkvæmda. Hjáleið er um Krýsuvíkurveg og Ásbraut annars vegar og Kaldárselsveg og Ásbraut hins vegar. Þessi lokun mun standa yfir til 31. maí 2020.
Aukin áhersla á svörun í síma, netspjalli og með tölvupósti
Í ljósi neyðarstigs almannavarna sem nú er í gildi vegna COVID-19 veirunnar eru íbúar og aðrir viðskiptavinir sem eiga erindi í þjónustuver og þjónustumiðstöð Hafnarfjarðarbæjar hvattir til að senda tölvupóst á hafnarfjordur@hafnarfjordur.is, spjalla við starfsfólk í netspjalli af vef okkar www.hafnarfjordur.is eða hringja í s. 585-5500 til að takmarka komur á starfsstöðvar. Við bendum íbúum […]
Skerðing á skólastarfi – unnið að skipulagningu
<<English below>> Tilkynning frá sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu er varðar starfsemi grunnskóla og og leikskóla. Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum í dag hefur heilbrigðisráðherra ákveðið að virkja heimildir sóttvarnalaga sem felur m.a. í sér að skólahald verður takmarkað tímabundið. Nánari útfærslur verða unnar samkvæmt tilmælum stjórnvalda. Mánudagurinn 16. mars verður starfsdagur í öllum skólum […]
Úthlutun úr Minningarsjóði Helgu og Bjarna
Þann 8. mars voru styrkir veittir úr Minningarsjóði Helgu og Bjarna við hátíðlega athöfn í Hásölum, safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju, á afmælisdegi Bjarna Snæbjörnssonar. Magnús Snæbjörnsson afhenti styrkina fyrir hönd stjórnar Minningarsjóðsins, en Magnús skipar stjórn sjóðsins ásamt séra Jóni Helga Þórarinssyni og Rósu Guðbjartsdóttur. Að þessu sinni hlutu fjögur verkefni styrki; Inga Björk Ingadóttir, hlaut 1 […]
443 brunahanar í Hafnarfirði
Bæjarvefsjáin Granni er byggð á upplýsingaslóð sem hefur verið til síðan um aldamótin 2000, en er nú komin í nýjan og notendavænni búning. Ný og betrumbætt bæjarvefsjá er liður í aukinni áherslu á stafræna þjónustu og miðlun fyrir íbúa bæjarins og aðra hagsmunaaðila, í samstarfi við EFLU verkfræðistofu. Bæjarblaðið Hafnfirðingur hitti Helgu Stefánsdóttur, forstöðumann á […]
Styrkir til uppbyggingar innviða á ferðamannastöðum
Styrkir til uppbyggingar við Leiðarenda og Krýsuvíkurbjarg Ráðherrar ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarmála og umhverfis- og auðlindamála gerðu í gær grein fyrir úthlutun fjármuna til uppbyggingu innviða, náttúruverndar og annarra verkefna á ferðamannastöðum árið 2020. Samtals er úthlutað rúmum 1,5 milljarði króna úr Landsáætlun um uppbyggingu innviða og Framkvæmdasjóði ferðamannastaða sem gerir kleift að halda áfram […]
Lokað um Strandgötu sunnan Reykjanesbrautar
Á morgun, miðvikudaginn 11. mars, milli frá kl. 9:30-12, mun verktaki loka fyrir umferð um Strandgötu sunnan Reykjanesbrautar vegna uppsetningar á vinnustaðamerkingum. Hjáleiðir eru um Krýsuvíkurgatnamót og Kaldárselsveg. Opið er fyrir gangandi vegfarendur. Fyrirfram þakkir fyrir sýndan skilning.