Flokkur: Fréttir

Breyting á umferð – aðrein að Ástorgi lokuð

Verktaki hefur lokað aðrein að Ástorgi frá Reykjanesbraut, suðvestan Strandgötubrúar, vegna vegaframkvæmda. Hjáleið er um Krýsuvíkurveg og Ásbraut annars vegar og Kaldárselsveg og Ásbraut hins vegar.  Þessi lokun mun standa yfir til 31. maí 2020.

Aukin áhersla á svörun í síma, netspjalli og með tölvupósti

Í ljósi neyðarstigs almannavarna sem nú er í gildi vegna COVID-19 veirunnar eru íbúar og aðrir viðskiptavinir sem eiga erindi í þjónustuver og þjónustumiðstöð Hafnarfjarðarbæjar hvattir til að senda tölvupóst á hafnarfjordur@hafnarfjordur.is, spjalla við starfsfólk í netspjalli af vef okkar www.hafnarfjordur.is eða hringja í s. 585-5500 til að takmarka komur á starfsstöðvar. Við bendum íbúum […]

Úthlutun úr Minningarsjóði Helgu og Bjarna

Þann 8. mars voru styrkir veittir úr Minningarsjóði Helgu og Bjarna við hátíðlega athöfn í Hásölum, safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju, á afmælisdegi Bjarna Snæbjörnssonar. Magnús Snæbjörnsson afhenti styrkina fyrir hönd stjórnar Minningarsjóðsins, en Magnús skipar stjórn sjóðsins ásamt séra Jóni Helga Þórarinssyni og Rósu Guðbjartsdóttur. Að þessu sinni hlutu fjögur verkefni styrki;   Inga Björk Ingadóttir, hlaut 1 […]

Samráðsfundir vegna skipulagsvinnu Vesturbæjar

Á fyrri samráðsfundi af tveimur vegna skipulagsvinnu er snýr að Vesturbæ Hafnarfjarðar þann 5. mars var farið yfir hugtakið Verndarsvæði í byggð, hvað í því felst og hvernig það á við um Vesturbæinn. Jafnframt var gerð grein fyrir þeirri fornleifa- og húsaskráningu sem gerð hefur verið á svæðinu. Hér er hægt að sækja glærukynningu frá fundinum: Vesturbær […]

Nýtt stofnræsi á Völlum

Á fundi sínum þann 17. desember 2019 samþykkti skipulags- og byggingarráð að fyrirhugaðar breytingar á aðal- og deiliskipulagi er ná til svæðis innan Vallahverfis yrðu sendar skipulagsstofnun til umsagnar. Gerði stofnunin ekki athugasemdir við að skipulagsbreytingarnar yrðu auglýstar samhliða, samanber heimild samkvæmt 2. mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Framangreint var lagt fram í bæjarstjórn til […]

Hér ríkir mikil starfsánægja

Tónlistarskóli Hafnarfjarðar (TH) var stofnaður árið 1950 og hóf starfsemi sína með 16 nemendum, sem flestir stunduðu píanónám. Framan af var húsnæði skólans víða í bænum, þar til Hafnarfjarðarbær varð fyrsta sveitarfélagið til að byggja tónlistarskóla frá grunni, við Strandgötu, árið 1997. Húsnæðið er þó þegar við það að springa í dag en tækifærin eru […]

443 brunahanar í Hafnarfirði

Bæjarvefsjáin Granni er byggð á upplýsingaslóð sem hefur verið til síðan um aldamótin 2000, en er nú komin í nýjan og notendavænni búning. Ný og betrumbætt bæjarvefsjá er liður í aukinni áherslu á stafræna þjónustu og miðlun fyrir íbúa bæjarins og aðra hagsmunaaðila, í samstarfi við EFLU verkfræðistofu. Bæjarblaðið Hafnfirðingur hitti Helgu Stefánsdóttur, forstöðumann á […]

Styrkir til uppbyggingar innviða á ferðamannastöðum

Styrkir til uppbyggingar við Leiðarenda og Krýsuvíkurbjarg Ráðherrar ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarmála og umhverfis- og auðlindamála gerðu í gær grein fyrir úthlutun fjármuna til uppbyggingu innviða, náttúruverndar og annarra verkefna á ferðamannastöðum árið 2020. Samtals er úthlutað rúmum 1,5 milljarði króna úr Landsáætlun um uppbyggingu innviða og Framkvæmdasjóði ferðamannastaða sem gerir kleift að halda áfram […]

Lokað um Strandgötu sunnan Reykjanesbrautar

Á morgun, miðvikudaginn 11. mars, milli frá kl. 9:30-12, mun verktaki loka fyrir umferð um Strandgötu sunnan Reykjanesbrautar vegna uppsetningar á vinnustaðamerkingum. Hjáleiðir eru um Krýsuvíkurgatnamót og Kaldárselsveg. Opið er fyrir gangandi vegfarendur. Fyrirfram þakkir fyrir sýndan skilning.

Kjarasamningur undirritaður og verkfalli aflýst

Kjara­samn­ing­ur var und­ir­ritaður á milli Sam­bands ís­lenskra sveit­ar­fé­laga og bæj­ar­starfs­manna­fé­laga inn­an BSRB rétt fyr­ir miðnætti í kvöld hjá Rík­is­sátta­semj­ara. Verk­falli fé­lag­anna gagn­vart Sam­bandi ís­lenskra sveit­ar­fé­laga hef­ur því verið af­lýst. Samn­ing­ur­inn tek­ur til um 7000 starfs­manna sveit­ar­fé­laga um allt land og gild­ir til 31. mars 2023. Starfsemi sveitarfélagsins mun því haldast óbreytt og ekki koma til […]