Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2020 er Bergrún Íris Sævarsdóttir barnabókahöfundur og teiknari sem á undanförnum árum hefur getið sér gott orð fyrir bækur sínar, bæði hér heima og erlendis. Bæjarlistamaður fær 1,5 milljónir í viðurkenningarskyni til að vinna áfram að list sinni.
Sér ævintýri og óvænta hluti í umhverfinu og hversdagslífinu
Fyrsta bók Bergrúnar Vinur minn, vindurinn, sem kom út árið 2014, vakti strax athygli og hlaut tilnefningar til bæði Fjöruverðlauna og Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Síðan hafa komið út tíu bækur eftir Bergrúnu þar sem hún er bæði höfundur texta og mynda. Auk þess hefur Bergrún myndskreytt fjölda annarra bóka, þar á meðal kennslubóka um allt frá stærðfræði til kynfræðslu. Fyrir bók sína (lang)elstur að eilífu hlaut Bergrún Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki barna og unglingabóka árið 2019. Í þeirri bók tekst Bergrún á við stórar spurningar um líf og dauða af virðingu og heiðarleika. Viðfangsefni Bergrúnar eru fjölbreytt, hún bendir á óvænta hluti í umhverfinu og hversdagslífinu og hjálpar ungum lesendum og eldri aðstoðarmönnum þeirra að sjá ævintýri allstaðar. Meðal bóka hennar Næturdýrin sem fjallar um börn sem helst vilja vaka um nætur og Ró sem hún vann ásamt Evu Þorgeirsdóttur þar sem kynntar eru slökunaræfingar með texta og myndum.
Sumri fagnað með vali á bæjarlistamanni
„Bergrún Íris er einn af sólargeislum okkar Hafnfirðinga og því afar ánægjulegt og viðeigandi að veita henni þessa viðurkenningu á Sumardaginn fyrsta. Bergrún er vel að viðurkenningunni komin; skapandi hæfileikakona sem hlotið hefur fjölda verðlauna og viðurkenninga síðastliðið ár og mun án efa halda þeirri vegferð áfram. Það eru meðal annars einstaklingar eins og Bergrún Íris sem hafa gert Hafnarfjörð að sannkölluðum lista- og menningarbæ. Einstaklingar sem sjá möguleika, tækifæri og ævintýri í hverju horni og bak við hvern stein“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar. Hefð hefur skapast fyrir því að tilkynna bæjarlistamann Hafnarfjarðar þegar sumar tekur við af vetri og hefur afhendingarhátíð verið haldin í Hafnarborg síðasta dag vetrar um árabil. Í ljósi aðstæðna í samfélaginu var í ár gripið til óhefðbundinna aðferða við tilkynningu á valinu, með heimsókn bæjarstjóra til bæjarlistamannsins.
Þakkar fyrir sig með bókagjöf til allra deilda á leikskólum í Hafnarfirði
Bergrún er fædd árið 1985, hún lauk prófi í listfræði frá Háskóla Íslands og síðar námi í teikningu frá Myndlistarskólanum í Reykjavík. Hún hefur sótt námskeið í gerð barnabóka og dvalið í vinnustofum bæði hér á landi og erlendis. Bergrún er búsett í Hafnarfirði ásamt eiginmanni, tveimur sonum og þrífættum ketti. Hún er með vinnustofu í Íshúsi Hafnarfjarðar þar sem hún er virkur þátttakandi í öflugu, skapandi samfélagi. Við val á bæjarlistamanni Hafnarfjarðar er kallað eftir tillögum bæjarbúa. „Ég er djúpt snortin og virkilega stolt af því að vera bæjarlistamaður Hafnarfjarðar. Síðustu vikur hafa margir leitað skjóls í bókum enda lestur ávallt ómetanleg hvíld frá amstri dagsins. Ég hef lesið, en líka skrifað og skapað og fundið hugarró í vatnslitum og pappír. Sköpunarþörf mannsins blómstrar ekki síst á óvissutímum. Þegar nýjar og erfiðar tilfinningar hellast yfir mannkynið eru það listamennirnir sem skrá tilfinningarnar með því að lyfta penslum, yrkja ljóð og töfra fram nýja tóna.“ segir Bergrún Íris nýkrýndur Bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2020 þakklát þeim heiðri sem henni er sýndur. Bergrún hefur ákveðið að þakka fyrir sig með bókagjöf á allar deildir leikskóla Hafnarfjarðar. Önnur bókin er Næturdýrin sem fylgir ljúf tónlist eftir Ragnheiði Gröndal. Hin bókin heitir Ró, eftir Evu Rún Þorgeirsdóttur, með vatnslitamyndum eftir Bergrúnu. Í Ró má finna einfaldar útskýringar á því hvernig öðlast má slökun og innri frið. „Hafnfirðingar tóku mér opnum örmum fyrir 12 árum og hafa síðan þá sýnt og sannað að hafnfirsk hjörtu slá í takt þegar á móti blæs. Megum við sem flest finna hugarró og líða sem best, í besta bænum okkar“ segir Bergrún Íris.
Þeir sem hlotið hafa nafnbótina bæjarlistamaður Hafnarfjarðar í gegnum árin eru:
Við óskum Bergrúnu Írisi innilega til hamingju með titilinn og þökkum fyrir fallega og veglega gjöf til leikskólanna okkar!
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 22. nóvember síðastliðinn að veita Sóltúni heilbrigðisþjónustu ehf. vilyrði til eins árs fyrir…
Um níu ára skeið hefur Hafnarfjarðarbær haldið í þá fallegu og góðu hefð að bjóða til veislu í Hásölum til…
Hellisgerði hefur hin síðustu ár ljómað allt árið um kring og þá ekki síst á aðventunni. Mikill metnaður hefur verið…
Rakel Björk Björnsdóttir er söngkona og tónsmiður í hljómsveitinni ÞAU ásamt manninum sínum, Garðari Borgþórssyni. Rakel ljær Hafnarfirði fallega rödd…
Draumur Hörpu Gústavsdóttur um ljósagöngu með góðum hópi á fjallið sitt Helgafell og hjartaljós á toppi Helgafellsins er að verða…
Fjögur verkefni hlutu í dag styrk úr sjóði Friðriks Bjarnasonar og Guðlaugar Pétursdóttur og voru styrkirnir afhentir með laufléttri athöfn…
Almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins hélt fund sinn hjá Veðurstofu Íslands í lok síðustu viku. Fundurinn var með aðeins öðruvísi sniði en vanalega…
Glöggir gestir tóku eftir þeirri nýjung á Thorsplani á opnunarhelgi Jólaþorpsins í Hafnarfirði um nýliðna helgi að sett hefur verið…
Jólabærinn Hafnarfjörður heldur í þær fallegu hefðir sem skapast afa í aðdraganda jóla. Ein af þessum fallegu hefðum eru jólaskreytingar…
Hugmyndin með Sorgartrénu í Hellisgerði er að öll þau sem hafa misst ástvin geti sest undir tréð og minnst þeirra…