Flokkur: Fréttir

Opið hús í Fríkirkju Hafnarfjarðar frá kl. 01:30 aðfaranótt 18. janúar

Opið hús í Fríkirkju Hafnarfjarðar frá kl. 01:30 Mjög alvarlegt slys varð í Hafnarfirði á tíunda tímanum í kvöld þegar bifreið fór fram af Óseyrarbryggju og hafnaði í sjónum. Samkvæmt lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um slysið kl. 21.07 og fór fjölmennt lið viðbragðsaðila þegar á staðinn. Þeir sem voru í bílnum voru fluttir á […]

Samveru- og bænastund í Hafnarfjarðarkirkju í dag kl. 16

Vegna slyssins við Óseyrarbryggju í Hafnarfirði í gærkvöldi verður samveru- og bænastund í Hafnarfjarðarkirkju í dag, 18. janúar klukkan 16:00. Prestar Ástjarnarkirkju, Hafnarfjarðarkirkju og Fríkirkjunnar í Hafnarfirði verða á staðnum ásamt áfallateymi Rauða krossins á Íslandi. Við minnum einnig á hjálparsíma Rauða krossins 1717.

Innritun í grunnskóla|Enrolment in primary school

<<English below>> Innritun nemenda í grunnskóla 2020 Opnað hefur verið fyrir innritun barna sem eru að fara í 1. bekk grunnskóla í Hafnarfirði haustið 2020. Opið er fyrir innritun til 1. febrúar nk. og er það á ábyrgð foreldra/forráðamanna að innrita börn í grunnskóla í því sveitarfélagi sem þau hafa lögheimili í. Grunnskólar Hafnarfjarðarbæjar eru […]

Heillaður af starfi félagsmiðstöðva og eflingu ungmenna

Vinnuhjartað hefur alltaf slegið hjá bænum – hefur starfað hjá sveitarfélaginu í rúm þrjátíu ár og er sannarlega Hafnfirðingur.  Geir Bjarnason, íþrótta- og tómstundafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar, er gestur Vitans hlaðvarps Hafnarfjarðarbæjar að þessu sinni. Í þessum þætti ræðir Geir líf sitt hjá bænum og með bænum síðustu áratugina. Geir er einn þeirra starfsmanna sem hafa meira […]

Styrkir til menningarstarfsemi – Grants for events and cultural projects – Dotacje do wydarzeń i projektów kulturalnych

Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna, viðburða og samstarfssamninga á sviði menningar og lista í Hafnarfirði. Umsóknum skal skila inn með rafrænum hætti til og með 17. febrúar 2020. Tvisvar á ári auglýsir menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar eftir umsóknum um styrki til menningarstarfsemi og eflingar á hafnfirsku menningarlífi. Markmiðið er […]

Brettafjör í snjónum á Víðistaðatúni

Tugir barna og unglinga léku listir sýnar á snjóbrettum – bæjarblaðið Fjarðarfréttir kíkti á krakkana og fylgdist með þeim á æfingu.  Sjá myndir og upprunalega frétt á vef Fjarðarfrétta Brettafélag Hafnarfjarðar var stofnað árið 2012 en hefur eflst mikið og dafnað síðan. Fyrst var áherslan mest á hjólabretti en fljótlega bættust snjóbrettin við en nú […]

Áframhaldandi samningur við Gaflaraleikhúsið

Sérstök áhersla á leiklistarstarfsemi fyrir ungt fólk og unga áhorfendur Hafnarfjarðarbær og Gaflaraleikhúsið hafa gert með sér áframhaldandi samning til þriggja ára um rekstur atvinnuleikhúss í Hafnarfirði með það að markmiði að efla menningarlíf í Hafnarfirði og glæða áhuga Hafnfirðinga á leiklist og öðrum þeim listgreinum sem leiksviði tengjast. Leikverk Gaflaraleikhúss hafa vakið verðskuldaða athygli […]

Fasteignagjöld 2020 – álagningarseðlar aðgengilegir

Álagningarseðlar fasteignagjalda 2020 eru nú aðgengilegir á MÍNUM SÍÐUM á www.hafnarfjordur.is og á www.island.is. Á álagningarseðlunum koma fram fjárhæðir fasteignaskatts, lóðarleigu, vatns-, fráveitu- og sorphirðugjalds. Einnig kemur fram fasteignamat og upplýsingar um eigendur og greiðendur gjaldanna. Tíu gjalddagar yfir árið – eindagi 30 dögum eftir gjalddaga Gjalddagar fasteignagjalda í Hafnarfirði árið 2020 eru tíu. Fyrsti […]

Jákvæðni á æfingum borgar sig

Þórdís Eva Steinsdóttir, frjálsíþróttakona úr FH, var kjörin íþróttakona Hafnarfjarðar á Íþróttahátíð Hafnarfjarðar sem fram fór 27. desember. Hún stefnir á mörg landsliðsverkefni á næstu árum og segir mikilvægt að trúa á sig og treysta þjálfaranum.  Eftir gott keppnisár þá segir Þórdís það hafa verið mikinn heiður að fá að verða fyrir valinu sem íþróttakona […]

Að þakka og njóta skilar árangri

Anton Sveinn McKee úr SH var kjörinn Íþróttakarl Hafnarfjarðar 2019 og einnig 4. besti á landsvísu. Bæjarblaðið Hafnfirðingur ræddi við Anton sem er gríðarlega þakklátur og hefur sett sér mikilvæg markmið. „Þetta er fyrst og fremst gífurlegur heiður. Eftir að hafa fórnað mörgu til að komast á þann stað sem ég er á í dag […]