Rekstrarniðurstaða Hafnarfjarðarkaupstaðar fyrri hluta ársins 2018 var jákvæð um 758 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir að rekstrarafgangur yrði 449 milljónir króna. Helstu frávik eru að framlög jöfnunarsjóðs voru umfram áætlun um 93 milljónir króna, aðrar tekjur voru um 140 milljónum króna umfram áætlun og fjármagnskostnaður var um 119 milljónum króna lægri en áætlun […]
Flokkur: Fréttir
Bættar starfsaðstæður sem draga úr álagi
Hafnarfjarðarbær hefur síðustu vikur og mánuði verið að vinna með niðurstöður skýrslu sem unnin var í vetur um starfsaðstæður á leikskólum bæjarins. Í samræmi við niðurstöðum hennar hefur Hafnarfjarðarbær verið að vinna að bættu starfsumhverfi og aðstöðu bæði barna og starfsfólks leikskólanna. Í þessum endurbótum er meginmarkmið að minnka álag á börn og starfsfólk skólanna. […]
Samstarfsverkefni þriggja sveitarfélaga fær styrk
Fræðslusvið Reykjanesbæjar, fræðslu- og frístundaþjónusta Hafnarfjarðar og skólaþjónusta Árborgar hafa átt í samstarfi um þróunarverkefni sem gengur meðal annars út á það að styrkja nám, líðan og félagslega stöðu nemenda af erlendum uppruna í skólum. Markmið þess er að styðja skólana í að staðsetja nemendur af erlendum uppruna hvað varðar fyrri þekkingu og reynslu. Niðurstöður […]
Bæjarstjórnarfundur 15. ágúst
Boðað hefur verið til bæjarstjórnarfundar miðvikudaginn 15.ágúst. Fundurinn hefst kl. 8:30 í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg, Strandgötu 34. Hér er hægt að sjá dagskrá fundar. Hér er hægt að horfa á fundinn í beinni útsendingu
Persónuverndarfulltrúi ráðinn
Hafnarfjarðarbær hefur ráðið persónuverndarfulltrúa í fullt starf en staðan var auglýst í byrjun sumars. Í starfið var ráðinn Jón Ingi Þorvaldsson og var hann valinn úr hópi 24 umsækjenda að loknu ítarlegu valferli. Jón Ingi lauk B.A. og M.A. gráðu í lögfræði árið 2011 frá HÍ. Í námi voru álitaefni og reglur um persónuvernd sérstakt […]
Snyrtileikinn 2018 – tilnefningar
Hafnarfjarðarbær leitar til íbúa og annarra áhugasamra eftir tilnefningum til viðurkenninga fyrir snyrtileika og fegurð eigna, garða og gatna í Hafnarfirði. Veittar verða viðurkenningar fyrir snyrtilegustu eignina, fallegasta garðinn, fallegustu götuna og snyrtilegasta fyrirtækið. Val til viðurkenninga byggir eingöngu á innsendum tillögum og því eru íbúar, starfsmenn og aðrir áhugasamir hvattir til virkrar þátttöku. Fegrunarnefnd […]
Tónlistarskóli Hafnarfjarðar óskar eftir að ráða skólastjóra til starfa.
Skólinn var stofnaður 1950 og starfar nú á tveimur stöðum í Hafnarfirði. Í glæsilegum skóla að Strandgötu 51, sem vígður var 1997 og í Tónkvísl við „Gamla Lækjarskóla“ þar sem rytmiska deildin er til húsa. Starfið felur í sér að stýra skólanum þar sem um 600 nemendur stunda nám og 50 kennarar starfa við skólann […]
Dvergsreitur í uppbyggingu
Í gær undirrituðu Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri og Helgi Gunnarsson fyrir hönd GG verk samning um uppbyggingu á Dvergsreitnum samkvæmt niðurstöðum útboðs. Deiliskipulagið er á lokastigum og framkvæmdir hefjast væntanlega snemma í haust.
Framkvæmdir við Reykjanesbraut
Laugardag 14. júlí frá kl 07:30-15:30 er stefnt að því að þökuleggja mön á 200m kafla á Reykjanesbraut í Hafnarfirði. Svæðið sem um ræðir er á kaflanum þar sem ekið er undir Áslandinu og þarna er ein akrein í hvora átt og umferð sett á hjáleið um Ásabraut, óhindruð umferð er til suðurs í átt […]
Róló á leikskólanum Hlíðarbergi
Í sumar verður starfræktur gæsluvöllurinn Róló á leikskólanum Hlíðarbergi, Hlíðarbergi 3, í sumarfríi leikskólanna frá 11. júlí til og með 3. ágúst. Opnunartími er frá kl. 9.00-12.00 og 13.00-16.00 (lokað í hádeginu). Róló er ætlaður börnum á aldrinum 2-6 ára. Börnin verða að vera klædd eftir veðri og með aukaföt. Athugið að lítil aðstaða til […]