Bóka- og bíóhátíð barnanna í Hafnarfirði verður haldin í þriðja skipti núna í mars. Hátíðin í ár verður helguð Guðrúnu Helgadóttur, rithöfundi og Hafnfirðingi. Guðrúnu þarf vart að kynna fyrir nokkrum núlifandi Íslendingi en eftir hana liggja persónur sem þjóðin hefur lært að elska í gegnum árin eins og Páll Vilhjálmsson, tvíburabræðurnir Jón Oddur og […]
Flokkur: Fréttir
Andri Steinar Johansen Setbergsskóla bar sigur út bítum lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar
Andri Steinar Johansen Setbergsskóla bar sigur út bítum lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar sem fram fór núna undir kvöld í Hafnarborg í Hafnarfirði í. Keppnin var nú haldin í 22. skipti en keppnin í Hafnafirði var sú fyrsta sem haldin var en núna eru systur keppnir hennar haldnar um allt land. Eliza Reid forsetafrú og Lilja Alfreðsdóttir […]
Innskráning á mínar síður
Frá og með deginum í dag fer innskráning á Mínar síður á hafnarfjordur.is nú eingöngu fram með Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Hægt er að panta nýjan Íslykil á island.is og fá hann sendan í heimabanka eða í bréfpósti á lögheimili. Rafræn skilríki er hægt að fá í bönkum, sparisjóðum og hjá Auðkenni. Til að sækja […]
Bæjarstjórnarfundur 14. mars
Boðað hefur verið til bæjarstjórnarfundar miðvikudaginn 14. mars. Fundurinn hefst kl. 17 í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg, Strandgötu 34. Hér er hægt að sjá dagskrá fundar Hér er hægt að horfa á fundinn í beinni útsendingu
Fjörtíu og fimm lóðir til auglýstar til úthlutunar í Skarðshlíð
Hafnarfjarðarbær hefur auglýst 45 lóðir fyrir um 90 íbúðir til úthlutunar í nýju og vistvænu íbúðahverfi í Skarðshlíð. Svæðið liggur sunnan og vestan Ásfjalls og er skjólsælt svæði umvafið gríðarlegri náttúrufegurð. Í skipulagi og hönnun er rík áhersla lögð á heildræna sýn, vistvænt skipulag, grænt yfirbragð og fjölbreytt útisvæði. Um er að ræða fjórar einbýlishúslóðir […]
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Hafnarfirði verður haldin þriðjudaginn 13,. mars kl. 17 í Hafnarborg. Keppnin er nú haldin í 22. skipti í Hafnarfirði þar sem keppnin er elst og á sér upphaf en í dag er hún haldin nánast um allt land. Þessa dagana er keppninni að ljúka í hverjum skóla með hátíð þar sem […]
Kynningarfundur fyrir Hraun Vestur
Miðvikudaginn 14. Mars næst komandi verður Skipulags- og byggingarráð með kynningarfund þar sem framtíðarsýn Hraun Vesturs verður kynnt. Fundurinn fer fram í Bæjarbíói kl 20:00 og eru allir sem eru áhugasamir um uppbyggingu og framtíð þessa svæðis hvattir til að koma og taka þátt í mótun framtíðar þessa nýja andlits Hafnarfjarðar. Á hönnunarstiginu hefur hverfið […]
Umferðaröryggisáætlun Hafnarfjarðarbæjar
Umhverfis- og framkvæmdaráð Hafnarfjarðarbæjar samþykkti á fundi sínum þann 7. febrúar 2018 s.l. að auglýsa umferðaröryggisáætlun Hafnarfjarðarbæjar fyrir íbúum bæjarins. Umferðaröryggisáætlunin mun liggja frammi til kynningar í þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar að Strandgötu 6 og hjá umhverfis- og skipulagsþjónustu á Norðurhellu 6, frá 1. mars – 28. mars. Þeim sem vilja gera athugasemdir eða senda inn ábendingar […]
Bæjarstjórnarfundur 28. febrúar
Boðað hefur verið til bæjarstjórnarfundar miðvikudaginn 28. febrúar. Fundurinn hefst kl. 17 í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg, Strandgötu 34. Hér er hægt að sjá dagskrá fundar. Hér er hægt að horfa á fundinn í beinni útsendingu Útsending hefst stundvíslega kl 17:00.
Fjölbreytt dagskrá í vetrarfríinu
Vetrarfrí verður í grunnskólum Hafnarfjarðar mánudaginn 26. og þriðjudaginn 27. febrúar og af því tilefni er frítt í sund fyrir börn og fullorðna þá daga í Ásvallalaug, Suðurbæjarlaug og Sundhöll Hafnarfjarðar. Hafnarborg býður börnum á grunnskólaaldri í vetrarfríi að koma og taka þátt í skemmtilegum og skapandi listasmiðjum á vegum safnsins. Fyrri smiðjan fer fram […]