Í gær undirrituðu Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri og Helgi Gunnarsson fyrir hönd GG verk samning um uppbyggingu á Dvergsreitnum samkvæmt niðurstöðum útboðs. Deiliskipulagið er á lokastigum og framkvæmdir hefjast væntanlega snemma í haust.
Flokkur: Fréttir
Framkvæmdir við Reykjanesbraut
Laugardag 14. júlí frá kl 07:30-15:30 er stefnt að því að þökuleggja mön á 200m kafla á Reykjanesbraut í Hafnarfirði. Svæðið sem um ræðir er á kaflanum þar sem ekið er undir Áslandinu og þarna er ein akrein í hvora átt og umferð sett á hjáleið um Ásabraut, óhindruð umferð er til suðurs í átt […]
Róló á leikskólanum Hlíðarbergi
Í sumar verður starfræktur gæsluvöllurinn Róló á leikskólanum Hlíðarbergi, Hlíðarbergi 3, í sumarfríi leikskólanna frá 11. júlí til og með 3. ágúst. Opnunartími er frá kl. 9.00-12.00 og 13.00-16.00 (lokað í hádeginu). Róló er ætlaður börnum á aldrinum 2-6 ára. Börnin verða að vera klædd eftir veðri og með aukaföt. Athugið að lítil aðstaða til […]
Framkvæmdir við Kaldárselsveg
Framkvæmdir eru hafnar við endurnýjun Kaldárselsvegar, ásamt gerð göngu- og hjólastíga og landmótun á nærliggjandi svæði. Verkið felur í sér endurgerð vegarins frá Reykjanesbraut að Elliðavatnsvegi, gerð tveggja hringtorga, tenginga við Brekkuás, Klettahlíð og Elliðavatnsveg, auk nýrra gróðursvæða og mana. Í framkvæmdinni verða einnig fluttar veitulagnir Vatnsveitu Hafnarfjarðar, HS veitna og Mílu. Verkið verður unnið […]
Samið um kaup á gæðaritföngum fyrir grunnskólanemendur
Hafnarfjarðarbær hefur ritað undir samning við Pennann/Eymundsson um kaup á ritföngum fyrir nemendur í grunnskólum Hafnarfjarðar fyrir skólaárið 2018-2019. Samningsundirritunin er lok á löngu ferli sem staðið hefur frá byrjun árs 2018 við að skilgreina vörur og undirbúa útboð á ritföngum. Penninn/Eymundsson reyndist hlutskarpastur í útboðinu af þremur aðilum sem buðu í ritföngin. Alls reyndust […]
Snyrtileikinn 2018 – tilnefningar
Hafnarfjarðarbær leitar til íbúa og annarra áhugasamra eftir tilnefningum til viðurkenninga fyrir fallega og vel hirta garða, götur og opin svæði eða stofnanalóðir í Hafnarfirði. Val til viðurkenninga byggir eingöngu á innsendum tillögum og því eru íbúar, starfsmenn og aðrir áhugasamir hvattir til virkrar þátttöku. Með viðurkenningunum er verið að skapa ákveðna fyrirmynd í þessum […]
Rósa Guðbjartsdóttir nýr bæjarstjóri
Rósa Guðbjartsdóttir tók við sem bæjarstjóri í Hafnarfirði fimmtudaginn síðast liðinn og hefur síðustu daga verið að koma sér inn í starfið og verið að heimsækja stærstu starfstöðvar bæjarins og hitta þar samstarfsfólk sitt. Rósa er alkunn bæjarmálunum í Hafnarfirði en hún tók sæti í bæjarstjórn Hafnarfjarðar fyrir tólf árum, eða árið 2006 og var á […]
Íbúafundur vegna tillögu að deiliskipulagsbreytingu við Hrauntungu
Boðað er til íbúafundar miðvikudaginn 27. júní kl. 17 á Norðurhellu 2 þar sem tillaga að uppbyggingu við lóðina að Hrauntungu 5 verður kynnt. Þar gefst tækifæri til að fara yfir tillöguna og ræða við skipulagshöfunda. Fundurinn er góður vettvangur til að ræða málin og gefur íbúum tækifæri til að koma á framfæri sínum sjónarmiðum. […]
Ný bæjarstjórn tekur við í dag
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar og óháðra í Hafnarfirði hafa gert með sér samkomulag um meirihlutamyndun í bæjarstjórn. Samstarfið er byggt á málefnasamningi sem kynntur verður nánar á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar kl 17:00 í dag. Ágúst Bjarni Garðarsson verður formaður bæjarráðs og Kristinn Andersen verður forseti bæjarstjórnar og þá verður Rósa Guðbjartsdóttir oddviti Sjálfstæðismanna og […]
Ný Bæjarstjórn fundaði í dag
Á fyrsta fundi nýrrar Bæjarstjórnar Hafnarfjarðar sem nú var að ljúka var lagður fram samstarfssáttmáli nýs meirihluta Bæjarstjórnar Hafnarfjarðar 2018 – 2022 og kosið í ráð og nefndir á vegum bæjarins. https://www.hafnarfjordur.ishttps://hafnarfjordur.is/media/baejarstjorn/malefnasamningur-xd-xb-fors2.pdf Ágúst Bjarni Garðarsson var kjörinn formaður bæjarráðs og Kristinn Andersen forseti bæjarstjórnar. Þá var Rósa Guðbjartsdóttir, fráfarandi formaður bæjarráðs, ráðin bæjarstjóri og kemur […]